Fimmtubekkingar spá í loðnu

Nemendur í 5. bekk Grunnskóla Vestmannaeyja rannsökuðu loðnu í bak og fyrir í kennslustund í fyrri viku og fræddust um þennan dyntótta fisk sem síðast veiddist 2018 en hvorki í fyrra né í ár.

Benoný Þórisson, framleiðslustjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar, lumaði hins  vegar á nokkrum loðnum af 2018-árgerðinni í frysti og færði skólanum með ánægju.

Fimmtubekkingar 2019 heimsóttu uppsjávarvinnsluna um þetta leyti í fyrra og stúderuðu loðnu en fræddust líka um veiðar og vinnslu þorsks, ufsa og karfa.

Flest er breytt í tilverunni í ár vegna kórónuveirunnar. Þess vegna áttu loðnurannsóknir grunnskólanemanna sér nú stað á heimavelli, í skólastofunni.

  • Helga Jóhanna Harðardóttir kennari tók myndirnar.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.