Vestmannaeyjabær auglýsir eftir starfsfólki 17 ára og eldra til sumarstarfa á vegum bæjarins fyrir árið 2023. Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl nk. Um er að ræða fjölbreytt störf á flestum stofnunum og sviðum Vestmannaeyjabæjar.
Leitað er að jákvæðum, duglegum og samviskusömum einstaklingum. Vestmannaeyjabær vill stuðla að jafnrétti kynja og hvetur því alla óháð kyni til að sækja um laus störf.
Almennar upplýsingar veitir Erna Georgsdóttir hjá Vestmannaeyjabæ í síma 488 2000 eða í tölvupósti: sumarstorf@vestmannaeyjar.is
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum íbúagátt Vestmannaeyjabæjar. Einstaklingar sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið leiðbeiningar í þjónustuveri í síma 488 2000.
Umsóknarfrestur rennur út á morgun, 14. apríl nk.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst