Fjölmenni á fundi Miðflokksins
Þeir máttu vel við una, Sigmundur Davíð, Snorri og Karl Gauti.

Miðflokksmenn, Sigmundur Davíð, Karl Gauti og Snorri Másson mega vera ánægðir með aðsókn á fund þeirra á Háaloftinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Milli 120 og 130 mættu á fundinn sem er sá fjölmennasti  sem einn stjórnmálaflokkur hefur haldið í Eyjum í mörg ár.

Þeir fóru yfir helstu stefnumál flokksins í innflytjendamálum, ríkisfjármálum, skattagleði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur og einbeittum vilja ráðherra Viðreisnar til að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, með góðu eða illu.

Þeir upplýstu að markmið þeirra er að Miðflokkurinn taki virkan þátt í komandi sveitarstjórnarkosningum í stærri bæjarfélögum. Er það í samræmi við það sem Karl Gauti sagði við Eyjafréttir fyrir nokkrum dögum, að stefnt er að framboði í Vestmannaeyjum í kosningum í maí í vor.

Vel á annað hundrað manns sóttu fundinn í gærkvöldi. Myndir Óskar Pétur.

Þrír á palli, Snorri, Sigmundur Davíð og Karl Gauti.

Nýjustu fréttir

Vilja taka upp daggjald í Frístund
Vikan í Eyjum: Ólögmætar uppsagnir, óveður og góðgerð í fullri Höll
Bleik messa í Landakirkju
Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.