Fjórðungs aukning á milli ára
21. ágúst, 2024
DSC_7690
Á fyrstu sjö mánuðum ársins hafa verið fluttar út sjávarafurðir fyrir rúma 199 milljarða króna. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 28,5 milljörðum króna í júlí samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum um vöruviðskipti sem Hagstofan birti á dögunum. Það er nokkuð myndarleg aukning frá júlí í fyrra, eða sem nemur um 26% í krónum talið. Þar sem gengi krónunnar var um 2% veikara nú í júlí en í sama mánuði í fyrra er aukningin aðeins minni í erlendri mynt, eða um 24%. Frá þessu er greint í Radarnum – fréttabréfi SFS.

Ofangreinda aukningu má rekja til nokkurra vinnsluflokka. Ber fyrst að nefna fiskimjöl og lýsi, sem hvort um sig var óvenju fyrirferðarmikið miðað við júlímánuð. Þannig nam útflutningsverðmæti fiskimjöls um 4,4 milljörðum króna í mánuðinum, sem er um 70% aukning á milli ára á föstu gengi. Útflutningsverðmæti lýsis nam svo rúmlega 3,4 milljörðum króna í júlí, sem er hátt í þreföldun á milli ára. Eins var dágóð aukning í útflutningsverðmæti frystra flaka (33%) og ferskra afurða (14%). Á móti vóg talsverður samdráttur í útflutningsverðmæti á heilfrystum fiski, eða sem nemur um 32%. Minni breyting var í útflutningsverðmæti annarra vinnsluflokka, eins og sést á myndinni hér fyrir neðan.

Viðsnúningur í júlí

Á fyrstu sjö mánuðum ársins hafa verið fluttar út sjávarafurðir fyrir rúma 199 milljarða króna. Það er tæplega 1% aukning miðað við sama tímabil í fyrra á föstu gengi. Þó ekki sé um ýkja mikla breytingu að ræða, þá er ljóst að þessi myndarlega aukning í júlí hefur snúið stöðunni við, enda hafði mælst tæplega 3% samdráttur í útflutningsverðmæti sjávarafurða þegar horft var til fyrstu sex mánuði ársins samanborið við fyrstu sex mánuði síðasta árs.

Eins og alla jafna er þróunin mismunandi á milli einstaka vinnsluflokka. Mest hefur aukningin orðið í útflutningsverðmæti lýsis, en verðmæti þess er komið í 17 milljarða króna á fyrstu sjö mánuðum ársins, samanborið við 12 milljarða á sama tímabili í fyrra. Það jafngildir rúmlega 42% aukningu á milli ára á föstu gengi. Eins er nokkuð myndarleg aukning í útflutningsverðmæti ferskra afurða. Útflutningsverðmæti þeirra er komið í 54 milljarða króna, sem er um 10% aukning á milli ára á föstu gengi. Þá jókst útflutningsverðmæti frystra flaka um 6% á sama kvarða og saltaðra og þurrkaðra afurða um 2%.

Samdráttur er í útflutningsverðmæti annarra vinnsluflokka. Vegur þar þyngst 30% samdráttur í heilfrystum fiski og 19% samdráttur í fiskimjöli. Það má hvort tveggja má, að stærstum hluta, rekja til loðnubrests. Af öðrum afurðaflokkum má nefna að um 16% samdráttur í útflutningsverðmæti rækju og 1% samdráttur í flokknum „aðrar sjávarafurðir“.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst