Flugfélagið Ernir hefur gert samkomulag við Samgöngu- og Sveitarstjórnarráðuneytið um flug til Eyja þrisvar sinnum í viku, tvö flug á þriðjudögum og eitt á föstudögum. Flug í kringum hátíðirnar verður með aðeins öðrum hætti en þegar föst áætlun byrjar í upphafi nýs árs og er fólki bent á áætlun og upplýsingar um flug á vefsíðu félagsins ernir.is, en fyrsta flug verður nk föstudag 16.desember. Er þetta samkomulag gert til að bæta samgöngur til og frá Vestmannaeyjum yfir vetrartímann en að óbreyttu er ekki unnt að hefja flug þangað á markaðslegum forsendum. Að mati ráðuneytisins var því talið nauðsynlegt að tryggja tímabundið lágmarksþjónustu á flugi til og frá Vestmannaeyjum í vetur á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda flugið mjög mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf í Vestmannaeyjum.
Flugfélagið Ernir sinnti áætlunarflugi til Vestmannaeyja frá árinu 2010 til í september 2020 þegar ekki var annað í stöðunni en að leggja niður flug sökum minnkandi eftirspurnar . Það er því mikið fagnaðarefni að félagið hafi möguleika á að þjónusta svæðið aftur og vonandi er hægt að byggja upp flug til og frá Vestmannaeyjum til frambúðar og með fleiri flugferðum í viku hverri.
Félagið hlakkar mikið til að hefja sig til flugs á Eyjar og vonast eftir að sem flestir geti nýtt sér þjónustuna þó um lágmarksflug sé að ræða tímabundið.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.