Flugið boðið út næsta vetur
20240324_ernir_vey_l
Vél Ernis á Vestmannaeyjaflugvelli í hádeginu í dag. Eyjar.net/TMS

Flug til Húsavíkur og Vestmannaeyja yfir vetrarmánuðina desember til febrúarloka verður boðið út fyrir næsta vetur. Þess misskilning hefur gætt að halda ætti út ríkisstyrktu flugi á heilsársgrundvelli. Það hefur ekki staðið til en sú nýjung að styrkja flug yfir þessa vetrar mánuði hefur verið tekin.

Þetta segir í tilkynningu frá Vegagerðinni, en í morgun sendi Mýflug/Ernir frá sér tilkynningu þess efnis að flugi til þessara áfangastaða yrði hætt um næstu mánaðarmót.

Flug verður styrkt yfir vetrarmánuðina desember til og með febrúar

Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir enn fremur að fyrr í vetur hafi verið gerðir samningar um flug út febrúar og síðan með mánaðarframlengingu út mars til þess að koma til móts við íbúa yfir erfiðustu vetrarmánuðina þegar aðrar samgöngur voru síður áreiðanlegar.

Samgöngur frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar hafa verið óvenjulega erfiðar á þessum vetri til dæmis.  Nú hefur verið tekin sú ákvörðun að halda áfram með þetta fyrirkomulag og bjóða flug út flug  á þessa tvo staði fyrir mánuðina desember – febrúar með sveigjanleika þannig að bregðast megi við tímabundið ef um óvenjulega erfitt tíðarfar er að ræða.

Æskilegt ef markaðurinn sæi sér fært að sinna þessari þjónustu lengur

Þetta er nýjung því ríkisstyrkt flug hefur eingöngu verið á þessa staði sem viðbragð við tímabundnum erfiðleikum. Auðvitað væri æskilegt ef markaðurinn sæi sér fært að sinna þessari þjónustu lengur en sem svarar tímabilinu þar sem ríkisstyrkja nýtur, en það verður að koma í ljós.

Það er kominn sá fyrirsjáanleiki í flug á þessa staði þannig að áform eru um að fljúga með ríkisstyrk þessa mánuði og það útboðsferli er komið í gang með það að markmiði að semja um þjónustuna, segir í tilkynningu Vegagrðarinnar.

https://eyjar.net/aaetlunarflugi-til-eyja-lykur-i-lok-mars/

 

Nýjustu fréttir

Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Dýptarmælingar fyrirhugaðar í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.