Flytja inn þúsundir tonna af sandi
Sandur A Land 2024 IMG 6702
Sandi mokað úr skipi. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

„Það er rétt, Steypey er að flytja þennan sand til Eyja gagngert til að nota í steypugerð.” segir Garðar Eyjólfsson, starfsmaður DVG í samtali við Eyjafréttir. Hann segir að þessi farmur komi úr bænum, rúmlega 3400 tonn.

„Aðalástæðan fyrir þessu er sú að sandurinn sem við höfum getað nýtt okkur til steypugerðar er sama sem búinn í Eyjum og til þess að lenda ekki í neinum vandræðum, þá sáum við okkur knúna til að flytja inn sand.

Þessi sandur er með mjög jafna kornadreifingu, alveg frá mjög mjög fínum sandefnum upp í aðeins grófari sand/steina og það er akkurat það sem verið er að leitast eftir þegar við búum til steypu svo steypan bindist rétt saman og verði nógu sterk m.v. þá forskrift af steypu sem óskað er eftir hverju sinni. Við reiknum með að  flytja inn umtalsvert meira magn af sandi á hverju ári m.v. óbreytta stöðu í sandmálum hér í Eyjum.” segir Garðar að endingu.

Halldór B. Halldórsson gerði sér ferð í Viðlagafjöru í morgun og má sjá myndband hans hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Breyttur útivistartími barna frá og með deginum í dag
Rokkið lifir – hOFFMAN sendir frá sér plötuna VIÐ í dag
Myllan flytur úr Dalnum – Eyjamenn hvattir til að halda ró sinni
Spáð hækkandi ölduhæð við Landeyjahöfn
Olís deildirnar hefjast í vikunni
Helgarnir sigruðu á 100 ára afmælismótum TV
Fræðsla um átraskanir í Landakirkju
Stefnt að þrýstiprófunum á NSL-4 í vikunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.