Frá Almannavarnanefnd Vestmannaeyja

Rafmagn fór af Vestmannaeyjabæ skömmu fyrir kl. 09 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti og HS veitum er um að ræða bilun í línukerfi Landsnets uppi á landi. Á fundi sem nefndin átti með fulltrúum Landsnets og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú fyrir stundu kom fram að unnið er að því að koma rafmagni á aftur en gera má ráð fyrir að viðgerð geti tekið a.m.k. tvær til þrjár klukkustundir.

HS veitur keyra nú allt það varaafl sem er til staðar hér í Eyjum þ.m.t. færanlega rafstöð Landsnets sem kom hingað til Eyja fyrir tveimur vikum. Varaaflið er hins vegar enn ekki nægjanlega mikið til að hægt sé að anna aflþörf að fullu. Af þeim sökum þarf að skerða skóladag nemenda í leik- og grunnskóla og munu skólarnir senda forráðamönnum nánari upplýsingar hvað það varðar.

Nánari upplýsingar um stöðuna og framgang viðgerða má sjá á heimasíðu Landsnets og heimasíðu HS veitna.

Nýjustu fréttir

Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.