Framsýni til framtíðar
Ragnheiður Sveinþórsdóttir

Ég hef einbeittar skoðanir á umhverfismálum þegar kemur að bæjarfélaginu okkar. Ég tel að reynsla mín og menntun muni nýtast sveitarfélaginu þegar við horfum til umhverfismála og sjálfbærni. Ég vil hugsa fram í tímann og hafa yfirsýn yfir næstu skref.

Þegar ég var að klára grunnskóla og samnemendur mínir fóru á framhaldsskólakynningar þá fór ég fyrst á háskólakynningu, til að áætla hvar áhugi minn kynni að liggja til að geta ákveðið framhaldsskóla í átt að framtíðarmarkmiðinu. Sjávarútvegsfræði heillaði mig mest svo eftir að hafa skoðað framhaldsskóla þá ég valdi Stýrimannaskólann þar sem mér fannst hann líklegastur til að veita mér þá þverfaglegu menntun sem ég sá fyrir mér.

Ég elska að vinna og sjómennskan átti ótrúlega vel við mig. Ég gef aldrei eftir og t.d. á loðnu í gamla daga þá var ég í blýinu heila vertíð, eftir að tuðað var um að ég hefði fengið léttara hlutverk í desember. Til að gera langa sögu stutta þá byrjaði ég í sjávarútvegsfræði í háskólanum og heillaðist af umhverfisfræðinni á sama tíma. Í stað þess að skipta um námsbraut þá ákvað ég að „bæði væri betra“ fyrir mig og lagði harðar að mér og kláraði ég tvær gráður á þremur árum. Í dag vinn ég að umhverfismálum sem stjórnandi rannsókna í þverfaglegum nýsköpunarhópi, sem þverar landið og vinnur að nýjum afsetningarleiðum fyrir aukafurðir í landbúnaði til hagsbóta fyrir sjávarútveg.

Umhverfismál eru mér hugleikin og ég vil sjá heildræna umhverfis- og samfélagsstefnu fyrir bæinn okkar þar sem umhverfisstefna er svo miklu meira en að flokka rusl og samfélagsstefna er svo miklu meira en að vísa í heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna. Við þurfum að horfa í sömu átt og Þóra í Kubuneh sem hugsar hvert skref fram í tímann, nýtir öll efni sem hún meðhöndlar og horfir alltaf næstu skref inn í framtíðina.

Ég vil koma því á framfæri að ef ég kemst áfram þá mun ég berjast fyrir hagsmunum bæjarins af fullum krafti. Ég trúi að samfélagið okkar sé það besta til að búa í, fólk sem flyst hingað muni undantekningalaust hagnast á því í formi lífsgæða fyrir sig og fjölskylduna sína.

Ég vil að samfélagið okkar sé alltaf besta útgáfan af sjálfu sér – fyrir okkur öll.
Vestmannaeyjar – verðum best.

Ragnheiður Sveinþórsdóttir
Sækist eftir 2-4 sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Nýjustu fréttir

Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.