Framtíðarsýn, nýting og rekstur Herjólfsbæjar

Vestmannaeyjabær auglýsir eftir áhugasömum aðilum um rekstur, nýtingu og framtíðarsýn Herjólfsbæjar í Herjólfsdal.

Í október árið 2005 var ráðist í byggingu nýs Herjólfsbæjar í Herjólfsdal sem lauk árið 2006. Bærinn er tilgátuhús sem byggir á heimildum um hvernig hinn upphaflegi landnámsbær kann að hafa litið út. Húsið er byggt sem langhús og gripahús. Lista- og menningarfélagið, Herjólfsbæjarfélagið, hafði frumkvæði að smíðinni. Félagið safnaði fjármunum og fékk styrki til að endurbyggja bæinn. Árið 2020 gaf Herjólfsbæjarfélagið Vestmannaeyjabæ bæinn til varðveislu og notkunar.

Vestmannaeyjabær leitar að samstarfsaðila sem hefur áhuga á að nýta, reka og viðhalda Herjólfsbæ, með áherslu á fræðslu, kynningu á sögu og menningu þess tíma og ferðamennsku. Áhugasömum rekstraraðilum er bent á að senda hugmyndir og tillögur til Vestmannaeyjabæjar, Bárustíg 15, 900 Vestmannaeyjum, fyrir 1. apríl nk. Jafnframt er hægt að senda á netfangið postur@vestmannaeyjar.is og merkja „Framtíðarsýn, nýting og rekstur Herjólfsbæjar.“

Nánari upplýsingar veitir Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs (angantyr@vestmannaeyjar.is) í síma 488-2000.

Nýjustu fréttir

250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.