Frumsýningin gekk vel

Leikritið Dýrin í Hálsaskógi var frumsýnt á dögunum hjá Leikfélagi Vestmannaeyja.

Frumsýningin gekk mjög vel að sögn Ingveldar Theodórsdóttur, ein af stjórnendum leikfélagsins.

,,Allir stóðu sig frábærlega, Agnes Emma leikstjóri vann gott starf með öllum og gaman er að fá svona ungan leikstjóra til starfa hjá okkur”.

Þrír voru gerðir að heiðursmeðlimum leikfélagsins, það voru þær Drífa Þöll Arnardóttir og Sigríður Diljá Magnúsdóttir en þær hafa séð um leikskrá leikfélagsins í fleiri fleiri ár og hafa báðar stigið oft á svið með félaginu. Ingveldur Theodórsdóttir var einnig gerð að heiðursmeðlimi en hún gekk til liðs við leikfélagið fyrir nærri 27 árum og hefur hún einnig oft stigið á svið, og leikur einmitt ömmu mús í Dýrin í Hálsaskógi sem er í sýningu, sem og að vera í stjórn eins og fram hefur komið.

Ljósmyndir: Sverrir Jóhannsson

Uppselt hefur verið á sýningarnar framan að, en næstu sýningar verða sem hér segir:

Laugardaginn 2. nóvember kl. 15.

Sunnudaginn 3. nóvember kl. 15.

Laugardaginn 9. nóvember kl. 15.

Sunnudaginn 10. nóvember kl. 15.

Nýjustu fréttir

Þrjú íþróttafélög í Eyjum fá rúma milljón úr Hvatasjóði
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.