Funda um stöðuna
DSC_5478
Kápan af vatnslögininni sem skemmdist. Eyjar.net/Óskar Pétur Friðriksson

Bæjarráð ræddi um stöðu vatnsveitumála í Vestmanneyjum og þá afstöðu HS Veitna sem liggja fyrir í bréfum félagsins til sveitarfélagsins vegna viðgerðar á neðansjávarlögninni til Eyja. Fulltrúar sveitarfélagsins og HS-Veitna munu funda með innviðaráðuneytinu í vikunni til að fara yfir stöðuna sem upp er komin. Þetta er meðal þess sem kom fram á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni.

Ábyrgð HS Veitna er skýr

Í afgreiðslu ráðsins segir að bæjarráð telji nauðsynlegt að halda til haga að árið 2002 keypti Hitaveita Suðurnesja, nú HS Veitur hf., Bæjarveitur Vestmannaeyja af Vestmannaeyjabæ. Með þeim samningi yfirtók Hitaveita Suðurnesja hf. allar eignir, skuldir, réttindi og skyldur Bæjarveitna Vestmannaeyja. Af samningnum leiðir að einkaréttur sveitarfélagsins var framseldur til hitaveitunnar og hvílir sú skylda á HS Veitum hf. að fullnægja vatnsþörf almennings, heimila og atvinnufyrirtækja í Eyjum í samræmi við skyldur félagsins sem leiða af kaupsamningnum og lögum um vatnsveitumál.

Ábyrgð HS Veitna hf. á neðansjávarlögninni (NSL-3) milli lands og Eyja, rekstri hennar og viðgerð er skýr hvort sem litið er til samningsbundinna eða lagalegra skyldna félagsins. HS Veitur hf. hafa séð um allan rekstur, framkvæmdir og viðhald sem tengjast vatnsveitunni og fengið allar tekjur af veitunni frá því rétturinn var framseldur á sínum tíma. Sú afstaða HS Veitna hf. að félagið beri eingöngu að leita leiða til að sinna bráðabirgðaviðgerð á lögninni standast því ekki nánari skoðun séu þær ekki til þess fallnar að tryggja fullnægjandi vatnsþörf í sveitarfélaginu til framtíðar. Það er í samræmi við skyldur félagsins alfarið á ábyrgð þess en ekki Vestmannaeyjabæjar að taka afstöðu til tilboðs sem fyrir liggur um varanlega viðgerð á lögninni.

Skora á HS Veitur hf. að tryggja starfsemi vatnsveitunnar

Bæjarráð Vestmannaeyja leggur áherslu á að það er á ábyrgð HS Veitna hf. að taka ákvörðun um hvernig félagið hyggst uppfylla skyldur sína um að sinna vatnsþörf í sveitarfélaginu. Á það meðal annars við um ákvarðanir um hvort og með hvaða hætti á að ráðast í viðgerðir á einu neðansjávarlögninni sem liggur til Eyja og er nú mikið löskuð. Bæjarráð telur mikilvægt að félagið grípi til allra þeirra aðgerða sem það telur nauðsynlegar til að sinna vatnsþörf í sveitarfélaginu með fullnægjandi hætti.

Bæjarráð Vestmannaeyja áréttar og tekur undir þau sjónarmið sem byggt hefur verið á af hálfu sveitarfélagsins í samskiptum við HS Veitur hf. vegna málsins og skorar á HS Veitur hf. að tryggja starfsemi vatnsveitunnar og vatnsþörf í sveitarfélaginu sem er þegar skert.

Hér er um gríðarlega mikilvægt mál að ræða fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum, bæði íbúa og atvinnustarfsemi sveitarfélagsins, og brýnt að hafist sé handa við að undirbúa varanlega viðgerð á neysluvatnslögninni til að tryggja afhendingaröryggi á vatni til Vestmannaeyja til framtíðar, segir í bókun bæjarráðs.

https://eyjar.net/ad-hs-veitur-ljuki-sinum-skyldum-hratt-og-vel/

https://eyjar.net/rumlega-30-haekkun/

Nýjustu fréttir

ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar
Birgir Nielsen um tónlistina og lífið á skólabekk  

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.