Fyrir og eftir gos í Einarsstofu – 1973 – Allir í bátana
Ingibergur var heiðraður fyrir framtak sitt, 1973 - Allir í bátana.

Ingibergur Óskarsson, upphafsmaður og drifkrafturinn í verkefninu, 1973 – Allir í bátana sá frá upphafi að reglulega yrði að minna á verkefnið til að fá sem flesta til að hjálpa til við að segja sögu sína.  Er hann með sýningu á myndum í Einarsstofu sem hann kallar, Fyrir og eftir. Forsagan er að um vorið 2013 kom Ragnar Jónsson flugvirki með myndir í Sagnheima. Þar er að finna myndir af húsum og umhverfi í Eyjum sem hann hafði tekið fyrir og fram á haust 73. Gaf hann safninu myndirnar og sagði velkomið að nýta þær að vild. Þegar Ingibergur sá þessar myndir ákvað hann að fara út á akurinn og taka myndir af öllu því sem Ragnar hafði myndað, þar sem afleiðingar eldgossins myndu koma greinilega fram.Rölti Ingibergur um bæinn meðfram hrauninu og reyndi að finna ávallt sömu  sjónarhornin og festa þau á filmu.

Úr varð þessi skemmtilega samsetning þar sem fyrir og eftir gos er sami staður en samt allt annar veruleiki eins og sjá má í Einarsstofu.

Ingibergur nefnir þrjár myndir sérstaklega þrjár aðrar myndir sem mynda eina  samsetningu.

 

Sýning Ingibergs er mjög áhugaverð, bæði fyrir þá sem upplifðu og þá sem eftir komu.

 

Sú fyrsta er tekin af Ágústi Halldórssyni. Um er að ræða heimili þeirra feðga að Faxastíg 5, Óskars í öskunni og Óskars í Áhaldaleigunni.

Næsta samsetning er einmitt eftir þá feðga sjálfa. Sú er tekin á Kirkjubæarbraut í gosi og þegar verið var að grafa sama hús undan ösku.

Að lokum er mynd sem Sigurður Ottesen tók af kirkjugarðinum 1973. Ingibergur tók síðan mynd af sama stað að því leyti sem unnt var.

Þess má geta að Ragnar Jónsson er kvæntur frænku Ingibergs, Guðrúnu Hlín Adolfsdóttur.

Nýjustu fréttir

Dýpkun tefst í Landeyjahöfn
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Þegar jörðin talar – Og við þurfum að hlusta
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.