Gísli sækist eftir fjórða sæti
Gísli Stefánsson

Gísli Stefánsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum tilkynnti á heimasíðu sinni í kvöld að hann bjóði sig fram í 4. sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum. Tilkynningu Gísla má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Framundan eru þingkosningar og Sjálfstæðisflokkurinn er farinn á fullt. Ég hef undanfarin 2 ár setið sem bæjarfulltrúi fyrir flokkinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja og í ráði árin 4 þar á undan og fengið að njóta þessa að læra þar af mér reyndara meira fólki. Þegar ég bauð mig fram í prófkjör sem fór fram hér vorið 2o22 þá má segja að ég „hafi komið sjálfur að máli við mig“ eins og einn góður forsetaframbjóðandinn komst að orði en í þetta skipti er ég að finna fyrir stuðning frá röddum innan og utan flokksins sem mér þykir ómögulegt að neita. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í röðun sem fer fram á kjördæmisþingi nk sunnudag, 20. október.

Ég hef haft mikinn áhuga á stjórnmálum og samfélagsmálum alla tíð og hefur sá áhugi aðeins aukist með aukinni þátttöku í stjórnmálum og flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins.  Ég hef grætt mikið á bæjarfulltrúastarfinu þó það kjörtímabil sé rétt hálfnað og séð að enn frekari þátttaka í stjórnmálum getur bara hjálpað mér við að hjálpa samfélaginu mínu hér í Eyjum. Einnig hefur starfið veitt mér góða innsýn inn í stöðu kjördæmisins sem eyjarnar eru hluti af, og má þar helst nefna bága stöðu samgöngumála víða um kjördæmið. Þar er ekki staðan aðeins bagaleg í Eyjum heldur er mál Ölfusárbrúarinnar á erfiðum stað, 13 einbreiðar brýr á þjóðvegi 1 til Hornafjarðar, efnislitlir malarvegir í uppsveitum, og svo má lengi telja.

Ég elska líka samfélagið mitt hér í eyjum og vil sjá það blómstra áfram sem hluti af raunhagkerfinu. Það mun ekki ganga nema að orkumálin komist í þann farveg sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að vinna að og rannsóknir á göngum hefist sem allar fyrst. Heilbrigðismálin og öryggi vegfarenda í kjördæminu standa enn höllum fæti þar sem enn á eftir að koma í gagnið sjúkraþyrlu á suðurlandi, verkefni sem var búið að fjármagna fyrir heimsfaraldur en var sett á ís.

Ég heiti því að starfa að þessum verkefnum ásamt öðrum mikilvægum fyrir Vestmannaeyjar, Suðurland og landið allt.”

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.