Glæsilegt starfsmannarými VSV í Króki tekið í gagnið

Hluti starfsmannarýmis í nýrri tengibyggingu Vinnslustöðvarinnar, Króki í Hafnargötu, var tekinn í notkun í dag. Starfsmenn í uppsjávarvinnslunni njóta einir herlegheitanna til að byrja með, það er að segja menn á vöktum á loðnuvertíð sem vonandi hefst í lok vikunnar eða í byrjun þeirrar næstu. Þannig verður líka hægt að aðgreina starfsmannahópa í fiskvinnslu VSV í sóttvarnaskyni vegna veirufaraldursins.

Að loðnuvertíð lokinni verður starfsmannarýmið tekið í gagnið til fulls fyrir allt starfsfólk, hvort heldur er í botnfiski, uppsjávarfiski, saltfiski eða á skrifstofu. Breyttum aðbúnaði starfsfólks má í raun líkja við byltingu með matsal fyrir 150 manns á 2. hæð, kynjaskiptum skiptirýmum, snyrtingum, þvottahúsi, eldhúsi og búri og skrifstofurými á 3. hæð

Eydís Ásgeirsdóttir

Eydís Ásgeirsdóttir, flokksstjóri og umsjónarmaður á starfsmannasvæði, tók á móti fyrstu sex starfsmönnunum í dag. Hún var á þönum að fylgjast með að allt væri eftir bókinni alls staðar: „Þú færð ekki að trufla mig lengi, hér er nóg að gera og mörg skrefin. Allt saman flott og fínt en aðalatriðið er að hlutirnir gangi fljótt og vel fyrir sig, flæðið sé gott og starfmenn skili sér glaðir í bragði til starfa á ný úr pásum! Ég kom ekki nálægt því að kaupa græjur í eldhúsið eða borð og stóla í kaffistofur en ég skipti mér heilmikið af ýmsum búnaði og fyrirkomulagi á starfsmannasvæðinu, smáatriðum sem eru stór og skipta miklu máli. Mér sýnst vel hafa tekist til.”

Verktakafyrirtækið Eykt steypti upp sjálfa bygginguna sem tengir saman hús Vinnslustöðvarinnar beggja vegna Hafnargötu. Járnsmiðjan Krókur, elsta húsið á lóð Vinnslustöðvarinnar, vék fyrir nýbyggingunni en andi þess lifir áfram með því að tengibyggingin fær heitið Krókur.

Hafnareyri ehf. er aðalverktaki við innréttingar, smíðar og raflagnir. Helstu undirverktakar eru Miðstöðin í pípulagningum, Eyjablikk í loftræstibúnaði, Hanni harði í gólfefnum og Viðar málari í málningarþættinum, segir Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri Hafnareyrar:

„Hanna Stína innanhússarkitekt var ráðgjafi okkar í verkefninu. Það var talsverð tímapressa á okkur að gera rýmið klárt ef loðna skyldi veiðast til þess að hægt væri að aðskilja væntanlegt starfsfólk í loðnuvinnslu annars vegar og starfsmenn í annarri vinnslu hins vegar vegna COVID. Það tókst og nú vantar bara loðnuna!

Við væntum þess að fyrsti farmurinn berist hingað af miðunum einhvern næstu daga. Spenna ríkir í Eyjum af því tilefni, enda höfum við ekki séð loðnu frá því árið 2018.“

Nýjustu fréttir

Teistan siglir til Landeyjahafnar
Fyrsta framhaldsprófið í trommuleik við Tónlistarskóla Vestmannaeyja
Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.