Goslokatónleikar í Gaflaraleikhúsinu á laugardagskvöldið

Það var happ fyrir Vestmannaeyjar þegar Kristín Jóhannsdóttir dró Seyðfirðinginn Magnús R. Einarsson, tónlistar- og fjölmiðlamann til Vestmannaeyja. Hefur hann sýnt Eyjarnar í skemmtilegu ljósi í pistlum á RÚV og látið til sín taka í tónlistinni.

Hann var fremstur meðal jafningja á Goslokahátíð í sumar þegar valinn hópur tónlistarmanna hélt einstaklega skemmtilega tónleika með sígildum sönglögum frá Suður-Evrópu með íslenskum textum.

Lög sem lifað hafa með þjóðinni og allir þekkja og elska að rifja upp. Lög eins og: Allt mitt líf, Heyr mína bæn, Kaprí Katarína, Bjössi á mjólkurbílnum, Ég vil fara upp í sveit, Blátt oní blátt, Góða ferð og fl..

Tónleikarnir tókust með eindæmum vel og því tóku menn  áskoruninni um að endurtaka þá á meginlandinu. Verða þeir í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á laugardagskvöldið, 15. október nk.

Flytjendurnir eiga það allir sameiginlegt að vera úr Eyjum eða hafa sterk tengsl við Vestmannaeyjar. Þeirra á meðal eru: Andrea Gylfadóttir, Silja Elsabet, Hrafnhildur Helgadóttir, Þórarinn Ólason, Eggert Jóhannsson og Magnús sem er jafnframt tónlistarstjóri og kynnir kvöldsins.

 

Nýjustu fréttir

Öruggur sigur ÍBV gegn ÍR
Nemendum boðið á sundnámskeið
Dýpkun strandar á veðri og ölduhæð
Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.