„Gott að landa þrisvar í viku“
sjomadur_bergey_opf_22
Trollið tekið inn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Alvöruvertíð virðist vera hafin hjá Vestmannaeyjatogurunum Bergi VE og Vestmannaey VE.

Þeir lönduðu báðir fullfermi á laugardaginn og var aflinn mest þorskur og ýsa sem fór til vinnslu hjá Vísi í Helguvík. Bergur landaði síðan nánast fullfermi af ufsa á sunnudaginn. Þá landaði Vestmannaey fullfermi í gærmorgun og var aflinn mest þorskur og ufsi ásamt dálitlu af ýsu. Loks er Bergur að landa í dag og er afli hans svipað samansettur og afli Vestmannaeyjar frá því í gær.

Rætt er við Jón Valgeirsson skipstjóra á Bergi á vef Síldarvinnslunnar. Þar er hann spurður hvort alvöru vertíð sé hafin? „Já, ætli við verðum ekki að segja það. Það er kominn talsverður vertíðarkraftur í þetta og það er bara gott að landa þrisvar í viku. Annars er fiskur ekki genginn á öll hefðbundin mið en það er góð veiði annars staðar þó ekki sé um aðgæsluveiði að ræða eins og gerist þegar vertíð er komin alveg á fullt. Við erum ánægðir með að fá töluvert af ufsa en ýsan hefur verið heldur leiðinleg við okkur að undanförnu.“ segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að allt sé að færast í vertíðarhorf. „Þetta hafa verið fínir túrar upp á síðkastið. Í túrnum sem landað var úr á laugardag byrjuðum við að veiða á Pétursey og Vík en veiddum mest austur á Ingólfshöfða. Í seinni túrnum var veitt í Háfadýpinu, á Hólshrauni og síðan í Skarðsfjörinni. Loks var endað í ufsa á Síðugrunni í skítaveðri. Menn eru afar sáttir við veiðina að undanförnu og það ánægjulegasta er að það sést meiri ufsi en undanfarin tvö ár eða svo. Nú er lengst að sækja í ýsuna, en hún virðist halda sig ennþá úti í köntum,“ segir Birgir Þór.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.