Grjóthrun við Friðarhöfn
Grjót fóru yfir gangstétt og út á akveg
Grjót féllu úr Klifinu síðdegis á miðvikudag, fóru yfir gangstéttina og stöðvuðust á akbrautinni vestan við seiðastöð Laxeyjar. Þegar myndin var tekin þegar gangandi vegfarendur voru að ljúka við að fjarlægja grjótið af götunni. LJósmyndir/aðsendar.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Grjót féllu úr fjallshlíðinni við botn Friðarhafnar síðdegis í gær, fóru yfir gangstétt og enduðu á akveginum vestan við seiðastöð Laxeyjar. Samkvæmt upplýsingum frá staðkunnugum virðist grjóthrunið hafa átt upptök sín í Langabergi, sem er á milli Skiphella og Klifsins.

Atvikið varð eftir að vinnudegi lauk hjá Laxey en á daginn leggja starfsmenn fyrirtækisins jafnan bifreiðum sínum á þessum stað. Hefði grjóthrunið orðið nokkrum klukkustundum fyrr eru líkur á því að ökutæki hefðu orðið fyrir grjótinu. Þá má einnig telja mildi að enginn gangandi vegfarandi hafi verið á gangstéttinni þegar grjótið féll.

Eyjafréttir höfðu samband við Vestmannaeyjabæ vegna málsins. Í fyrstu kom fram að bæjaryfirvöldum hefði ekki borist tilkynning um grjóthrunið. Eftir að myndir af vettvangi voru sendar sagði Dagný Hauksdóttir, skipulagsfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, að atvikið yrði tekið til skoðunar.

Í svari Dagnýjar kemur fram að deiliskipulag sem tók gildi árið 2013, og gerir ráð fyrir byggingarreit í botni Friðarhafnar og breyttu umferðarskipulagi á svæðinu, geri ráð fyrir að svæðið sé á mörkum vásvæðis vegna grjóthruns. Þar sé jafnframt gert ráð fyrir lágri mön til að vernda göngustíginn fyrir grjóthruni. Þá bendir hún á að vásvæði vegna grjóthruns séu einnig skilgreind í Aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015–2035.

„Það var gott að þú skrifaðir svo að við getum skoðað þetta atvik,“ segir Dagný í svari sínu til Eyjafrétta. Myndir frá vettvangi sýna að grjótið fór yfir gangstéttina og stöðvaðist á akveginum. Þegar myndirnar voru teknar hafði grjótið verið fjarlægt af miðri akbrautinni.

 

Seiðastöðin í botni Friðarhafnar. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Nýjustu fréttir

Nýtt vefblað Eyjafrétta komið út
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í morgunsárið
Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.