Nafn: Guðný Hrund Karlsdóttir.
Heimilishagir: �?g á eina dóttur, Kristrúnu Ástu 14 ára, kærasta, hund og kött.
Menntun og starf: Cand. oecon í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands. Viðskipta- og hugbúnaðarráðgjafi hjá Maritech.
Áhugamál: Bókalestur, útivist og enski boltinn.
Hvað horfir þú á í sjónvarpi: Fréttir, íþróttir og ameríska afþreyingarþætti.
Uppáhaldsmálsháttur: Auðs aflar iðin hönd.
Hvaða eiginleika þarf stjórnmálamaður að hafa: Hugsjón, vilja og getu til að setja sig vel inn í málin og fylgja þeim eftir.
Mesti stjórnmálamaður allra tíma, íslenskur: Gylfi �?. Gíslason
Af hverju í pólitík: Til að breyta og bæta.
Hverju þarf að breyta: Við þurfum að draga úr verðbólgu, lækka vexti og stefna að velferð fyrir alla. Jafna þarf aðstæður barna og unglinga og bæta skilyrði öryrkja, sjúklinga og aðstandenda þeirra.
Hvað ætlar þú að leggja áherslu á á þingi? Skynsama hagstjórn, sem byggir á jafnaðarstefnu, ráðdeild og framsýni. Aukinn jöfnuður og sterkt mennta-, velferðar- og tryggingakerfi er í mínum huga óaðskiljanlegur hluti slíkrar hagstjórnar, enda forsenda þess að við náum árangri til framtíðar. �?essi eru mín hjartans mál.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.