Guðrún tekur undir hugmyndir Páls
10. febrúar, 2025
Palli Gudrun Gong Sams
Páll Scheving og Guðrún Hafsteinsdóttir. Mynd/samsett

Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hefur sem kunnugt er boðið sig fram til að leiða flokkinn. Guðrún mætti á Sprengisand í gær og ræddi þar stjórnmálin, framboð sitt til formanns og stöðu Sjálfstæðisflokksins.

Áður en Guðrún tók sæti á þingi sat hún m.a. í stjórnum lífeyrissjóða. Fyrst í stjórn lífeyrissjóðsins Festu 2012–2014. Svo formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2016–2019. Í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða 2017–2021. Formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða 2018–2021. Varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2019–2021. Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2021.

“Mér sveið það”

Af þessu má sjá að Guðrún hefur mikla reynslu af stjórnun lífeyrissjóða. Í máli hennar á Sprengisandi kom fram að hún hafi tekið þátt í því að fjárfesta fyrir fé íslensk almennings í innviðum í öðrum löndum.

,,Ég tók þátt í því að byggja brýr, að byggja vegi, að byggja hafnir í Kanada og Hollandi og Belgíu og Guð veit hvar. Mér sveið það. Mér sveið það að við skyldum ekki einhvern veginn leita leiða til þess að nýta fé íslensk almennings til þess að byggja upp innviði í íslensku samfélagi sem að yrði til verðmætasköpunar og aukinnar hagsældar hér á landi.” sagði Guðrún og hélt áfram.

,,Þess vegna lagði ég það einu sinni til í ræðu að hvort að við gætum hugsað okkur að skoða þann möguleika að það færi einhver hluti af eignarhaldi Landsvirkjunar eingöngu í eignarhald lífeyrissjóðanna í ákveðinn tíma og við gætum þá tappað út eigið fé af Landsvirkjun og byggt hér. Farið í stórátak í samgöngum, stórátak í heilbrigðismálum, stórátak í að tryggja betur flutningsgetu á raforku. Allt eru þetta mál sem skipta almenning á Íslandi gríðarlega miklu máli.

Mér þótti miður að þeirri umræðu var í rauninni sendiboðinn skotinn. Í stað þess að við gætum tekið hér vitiborna umræðu um hvort þetta væri gerlegt og hvort þetta væri hægt. Vegna þess að ég held að almenningur gæti alveg hugsað sér að eiga hér mikilvæga innviði í gegnum lífeyrissjóðina sína. Vegna þess að almenningur á lífeyrissjóðina. Almenningur á t.d. 50% í HS Orku. Ég hefði gjarnan viljað sjá lífeyrissjóðina eignast HS Orku að fullu. Og almenningur á Íslandi ætti þá þetta mikilvæga fyrirtæki í gegnum eignarhald sitt, í gegnum lífeyrissjóðina, í gegnum sparnað sinn,” sagði hún.

Slæm staða samgangna birtist okkur í fjölmiðlum nánast á degi hverjum

Þessar hugmyndir Guðrúnar eru í anda þess sem Páll Scheving sendi inn í samráðsgátt og fjallað var um hér á Eyjafréttum ekki alls fyrir löngu. Þær gengu út á að leita samstarfs við lífeyrissjóði landsmanna til fjármögnunar á nauðsynlegri uppbyggingu og rekstri samgangna í landinu. Fjárfestingin og rekstur skilaði sér svo í veggjöldum til lífeyrissjóðanna.

Páll segir í samtali við Eyjafréttir að hann hafi heyrt viðtalið við Guðrúnu og sé henni sammála um að rétt sé að nýta lífeyrissjóðina til uppbyggingar innviða í landinu, eins og hann hefur bent á.

,,Það er í raun ótrúlegt að heimilt sé að nýta fé almennings í landinu til uppbyggingar innviða erlendis en ekki á heimaslóð. Það er mikilvægt að fara vel yfir þetta mál og opna leiðir til að nýta fjármagn sjóðanna á sem bestan hátt í þágu eigenda þeirra. Til dæmis birtist okkur slæm staða samgangna á Íslandi í fjölmiðlum nánast á degi hverjum og ríkissjóður virðist ekki hafa burði til að takast á við verkefnið. Því er nauðsynlegt fyrir ráðamenn þessa lands að fara að hugsa út fyrir boxið og nýta þessa leið. Því fyrr því betra,” segir Páll.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

Nýjar fréttir

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.