Gul viðvörun: Talsverð eða mikil snjókoma
Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á Suðurlandi og Suðausturlandi. Tók viðvörunin gildi á Suðurlandi kl. 14:00 og gildir hún til kl. 02:00 í nótt.

Í viðvörunaroðrum segir að búist sé við að talsverð eða mikil snjókoma falli í fremur hægum vindi. Uppsöfnuð snjókoma á viðvörunartímabilinu gæti verið á bilinu 15 til 30 sentimetrar á dýpt, mest úrkoma í uppsveitum og austan til á svæðinu. Líkur eru á að snjókoma valdi erfiðum akstursskilyrðum og færð gæti spillst.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Norðaustan 3-8 m/s, en vestan 8-13 á Suður- og Vesturlandi. Snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Vægt frost.

Á sunnudag:
Breytileg átt 3-8 og bjartviðri, en snjókoma af og til á norðanverðu landinu, einkum við ströndina. Frost 2 til 12 stig, mest í uppsveitum sunnanlands.

Á mánudag:
Norðaustan 5-10, en 10-15 með austurströndinni. Skýjað norðaustan- og austanlands, annars víða bjart veður. Áfram frost um allt land.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Él á norðanverðu landinu, einkum við ströndina, en víða þurrt og bjart veður í öðrum landshlutum. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landins.
Spá gerð: 23.01.2025 08:57. Gildir til: 30.01.2025 12:00.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.