Hægir á matvöruhækkunum í júní
Innkaup Kerra

Verðlag á dagvöru hækkaði 0,58% í maí samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ og nemur árshækkun um 4,5%. Er þetta fjórða mánuðinn í röð sem vísitalan hækkar um meira en hálft prósent milli mánaða en sá hækkunartaktur jafngildir um 6% árshækkun á matvörum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

Þar segir jafnframt að megindrifkraftar verðhækkana í maí hafi verið hækkanir á mjólkurvörum í öllum verslunum og almennar hækkanir í verslunum Samkaupa. Líkt og nefnt var í síðustu greiningu verðlagseftirlitsins hefur verðlag í verslunum Samkaupa, þ.e. Kjörbúðarinnar og Nettó farið hækkandi að undanförnu og verðlækkanir sem hófust síðsumars í fyrra því gengið til baka.

Dagvöruvísitalan hefur hækkað um 0,29% miðað við nýjustu tölur júnímánaðar, en þar af hefur verðlag í Bónus hækkað um 0,36%, í Krónunni um 0,21% og í Nettó um 0,15%.

Hlutfall vara sem hækkuðu í verði í Bónus og Krónunni fór lækkandi í apríl, en hækkaði svo aftur í maí þegar mánuðurinn var allur. Miðað við fyrstu tölur júnímánaðar er ekki að sjá að umfang hækkana dragist saman þó verðhækkanir séu minni. Fyrstu mælingar mánaðaris sýna að um 17% vara í Bónus hafi hækkað milli mánaða og 12% vara í Krónunni.

Verð á súkkulaði hækkar enn

Súkkulaðiverð hefur hækkað jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár. Verðhækkanir hafa komið fram í vörum frá flestum framleiðendum en frá janúar 2024 hefur verð á vörum frá Nóa Síríus hækkað um 37%, frá Freyju um 30% og frá Góu um 14% miðað við verð í Bónus og Krónunni. Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á kakói hafi lítið breyst síðasta hálfa árið mælast enn hækkanir á súkkulaðiverði hér á landi.

Hækkanirnar vekja athygli fyrir þær sakir að þær haldast í hendur við betri afkomu sælgætisframleiðenda, en sem dæmi jókst rekstrarhagnaður Nóa Síríus um helming í fyrra og hagnaður fyrirtækisins meira en þrefaldast.

Það er ekki aðeins súkkulaði frá sælgætisframleiðendunum sem hefur hækkað mikið. Nóa Trítlar hafa til dæmis hækkað um 26% í Krónunni og 28% í Bónus frá janúar í fyrra og Góu snuð í Bónus hafa hækkað um 23%.

Vörur

Verslun

Hækkun frá janúar í fyrra

Nóa Trítlar, ýmsar sortir

Bónus

28%

Nóa Trítlar, mix

Krónan

26%

Grænt ópal, sykurlaust 

Bónus

26%

Góu snuð

Bónus

23%

Rautt risa ópal, sykurlaust 

Krónan & Bónus

19%

Góu bangsahlaup

Krónan

19%

Trölla Tópas

Bónus

19%

Ópal, tvískiptur

Krónan

18%

Kaffi hefur einnig hækkað í verði síðustu misseri samhliða hækkunum á heimsmarkaðsverði. Í maí höfðu kaffibaunir hækkað í Bónus og Krónunni hækkað um 17% að meðaltali milli ára. Frá maí hefur verðið aftur tekið stökk og malað kaffi og baunir nú hækkað um 10-11% til viðbótar.

Eftir því sem kaffivaran er meira unnin hefur hún hækkað minna, enda hefur hrávörukostnaðurinn hækkað mest undanfarið ár.

Prís áfram ódýrasta verslunin

Prís er áfram ódýrasta verslunin í reglulegu eftirliti verðlagseftirlitsins, en eins og sést á grafinu hér að neðan hefur verð í Prís verið um 4% undir verði Bónus að meðaltali frá opnun, og er enn. Verðþróun í verslunum Samkaupa undanfarna mánuði kemur fram í breytingum á verðlagi milli verslana. Verðlag í Nettó lækkaði nokkuð eftir að Prís kom inn á markaðinn síðasta haust en þá fór verðlag í Nettó úr því að vera um 11-14% hærra en í Bónus í það að vera um 4-5% hærra. Síðustu mánuði hefur munurinn aukist og er verðlag í maí um 8,7% hærra að jafnaði en í Bónus. Til samanburðar er verðlag í Krónunni að jafnaði

0,6-1,1% hærra en í Bónus á þeim vörum sem fást í báðum verslunum en í Prís er verðlagið að jafnaði 3,5-4% ódýrara en í Bónus.

Nýjustu fréttir

Seinni ferðir Herjólfs falla niður vegna veðurs og sjólags
„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.