Litlu mátti muna í gær að gróðureldur britist úr í trjálundi ofan við Skansinn þegar það sem í upphafi átti að vera lítill sykurpúðavarðeldur byrjaði að fara úr böndunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá
Slökkviliði Vsetmannaeyja.
Þarna er lítið eldstæði sem búið var að bæta helst til of miklu timbri á með þeim afleiðingum að nálægur gróður var farinn að loga. Þarna hefði getað farið mjög illa ef eldurinn hefði náð sér á strik í þurrum gróðrinum og mosanum hrauninu.
“Best er því að sleppa því alfarið að kveikja upp og þá sérstaklega í svona þurrkatíð eins og verið hefur síðasta mánuðinn en að öðrum kosti að hafa alltaf slökkvitæki eða vatn við hendina til að bregðast við og slökkva í áður en farið er af vettvangi. Einnig þarf að ganga úr skugga um að eldstæði og nánasta umhverfi sé tryggt og ekki sé hætta á að eldur geti borist í gróður eða aðra viðkvæma hluti,” segir í tilkynningunni.