Hafró enn á móti dælingu við Landeyjahöfn
Landeyjahöfn er lífæð Vestmannaeyja. Gæti stórfeld efnistaka við hana stefnt höfninni í hættu?

Enn og aftur leggst Hafrannsóknarstofnun gegn fyrirhugaðri efnistöku þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg af hafsbotni við Landeyjahöfn sem allir umsagnaraðilar, ekki síst bæjarstjórn Vestmannaeyja hafa mótmælt kröftuglega. „Stofnunin gerir þetta þrátt fyrir að Heidelberg hafi minnkað fyrirhugaða efnistöku í kjölfar gagnrýni fyrr á árinu. Þetta kemur fram í nýrri umsögn Hafrannsóknarstofnunar um efnistökuna. Umsögnin var birt fimmtudaginn 26. september. Stofnunin kallar framkvæmdina „stórskala“ og án fordæma hér á landi,“ segir í frétt RÚV um málið.

Í upphaflegri áætlun Heidelberg var gert ráð fyrir að dæla upp 80 milljón rúmmetrum af sandi á 30 árum en hefur lækkað sig í 60 milljónir rúmmetra. Hafró telur enn ríka áherslu til þess að staðið sé vörð um svæðið undan Landeyjahöfn. Bæjarstjórn hefur líka bent á að vatnsleiðslur, rafstrengir og ljósleiðarar til Vestmannaeyja geti verið í hættu. Skýrsla Hafró er öflugt vopn í baráttu Vestmannaeyinga gegn þessum stórtæku áætlunum sem gætu haft mjög alvarlegar og óafturkræfar afleiðingar á lífríki við Suðurströndina.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.