Hákon Daði framlengir hjá Hagen
Hákon Daði Styrmisson í leik með ÍBV gegn FH.

Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson sagði frá því í gærkvöldi á Facebook að hann hafði skrifað undir þriggja ára samning við þýska handknattleiksliðið Eintracht Hagen á dögunum. Greint er frá þessu á vefnum handbolti.is. Hann hefur leikið með liðinu síðan í lok september á samningi sem gildir út leiktíðina.

Hákon Daði sagði við handbolta.is í byrjun mars að ekki yrði framhald á veru hans með Hagen að leiktíðinni lokinni. Síðan hefur Eyjamaðurinn farið hamförum og skoraði m.a. 17 mörk í leik á dögunum.

Ljóst er að forráðamenn Eintacht Hagen hafa séð sig um hönd í kjölfar frábærrar frammistöðu Hákons Daða síðustu vikur. Á sama tíma hefur Hagen-liðið verið á hraðri siglingu og unnið 12 af síðustu 13 leikjum í næst efstu deild þýska handknattleiksins. Hagen er í fjórða sæti þegar sex umferðir eru eftir.

Hákon Daði er í 11. sæti á lista yfir markahæstu leikmenn 2. deildar með 133 mörk, 15 af þeim eru út vítaköstum. Skotnýting hans er 69%. Í frétt á heimasíðu Eintract Hagen kemur fram að samningurinn hafi verið undirritaður á miðvikudaginn fyrir rúmri viku.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.