Haustfundur hótel- og veitingamanna SAF í Vestmannaeyjum á morgun:
Haustfundur hótel- og veitingamanna Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2014 fer fram í Vestmannaeyjum á morgun fimmtudaginn 9. október nk. Fundurinn verður í AK�?GES og er gert ráð fyrir að fundarmenn verði á milli 40 og 50.
Fundurinn verður settur klukkan 09.30 og verður komið inn á brýnustu hagsmunamál samtakanna. M.a. hvaða hagkvæmni felst í aukinni umhverfisvitund fyrirtækja. Í Heita pottinum, þar sem það sem efst er á baugi í umhverfi hótel- og veitingamanna verður farið yfir sviðið, m.a. breytingar á VSK, lög um veitingahús- og gististaði, einföldun regluverks, fræðslumál o.fl. Kl. 15.15 Glöggt er gests auga er hugvekja um ferðaþjónustu sem Páll Magnússon, Eyjapeyi og fv. útvarpsstjóri flytur.
Á eftir verður óvissuferð í boði Eyjamanna, rútuferð um Heimaey, bátsferð með Ribsafari fyrir þá sem vilja og endað á skemmtilegum stað.
Um kvöldið er hátíðarkvöldverður í Eldheimum þar sem veislustjórn og skemmtiatriði verða í höndum heimamanna, danstónlist o.fl.

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi – Samfylkingin styrkir stöðu sína
Staðfesta synjun á gagnabeiðni Eyjafrétta
Leggja til tvöfalt meiri makrílveiði á næsta ári
Góður afli en erfiðlega gekk að finna ýsu
Framkvæmdir víða um bæinn – myndband
Má skipta liði?
Síldarveiðar í fullum gangi hjá Vinnslustöðinni
Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.