Lista og menningarfélag Vestmannaeyja er gestalistamaður september mánaðar hjá ART67. ART67 er litríkt listagallerí sem sýnir fjölbreytta nútímalist, málverk, leir- og glerlist eftir íslenska listamenn. Sýningin er opin virka daga 11-18, laugardaga 11-17 og sunnudaga 13-16 að Laugarvegi 61.
Lista og menningarfélag Vestmannaeyja var stofnað í mars 2019. Markmið með stofnun þess var að sameina lista- og handverksfólk eyjanna. Fyrsta starf félagsins var að finna húsnæði undir starfsemi þeirra félagsmanna sem óskuðu eftir að fá vinnuaðstöðu. Þegar húsnæðið var fundið í september sama ár fór listastarfsemin í gang. Félagsmenn eru orðnir yfir 60 og í húsnæðinu leigja 32 félagsmenn vinnuaðstöðu. 21 félagsmaður tekur þátt í þessari samsýningu sem ber heitið „Haustvindar úr suðri“ en öll verkin eru til sölu í stærðinni 40 x 40 cm. Sýningin opnar laugardaginn 4. september kl. 14.00.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.