Heildarafli í maí rúmlega 68 þúsund tonn
Sjom Landar
Botnfiskafli var rúm 42 þúsund tonn og dróst saman um 7%. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Landaður afli nam rúmum 68 þúsund tonnum í maí 2025 sem er 22% minna en í maí 2024. Botnfiskafli var rúm 42 þúsund tonn og dróst saman um 7%, þar af fór þorskafli úr 22,2 þúsund tonnum í 21,7 þúsund tonn. Uppsjávaraflinn var nær allur kolmunni, 22 þúsund tonn. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar.

Á tólf mánaða tímabili, frá júní 2024 til maí 2025, var landað rúmlega 954 þúsund tonnum sem er 12% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.

Nýjustu fréttir

Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Gjaldskrá Frístundar til endurskoðunar
Vilja setja aldursmörk á samfélagsmiðla – ábyrgðin yrði hjá foreldrum
ÍBV tapaði gegn Breiðablik á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.