Helena Hekla og Viggó eru fólk framtíðarinnar
Viggó og Helena Hekla. Glæsilegir fulltrúar ÍBV. Mynd Tígull/Lind.

„Í bráðum 40 ár hafa Eyjafréttir komið að því að veita efnulegu knattspyrnufólki viðurkenningu, Fréttabikarinn. Því miður er ég fjarri góðu gamni í dag en vil byrja á að óska þeim Viggó Valgeirssyni og Helenu Heklu Hlynsdóttur til hamingju. Ykkar er framtíðin en þið eruð líka framtíð ÍBV og okkar allra sem viljum sjá ÍBV í fremstu röð í fótboltanum,“ sagði í kveðju sem Bjarni Ólafur, veislustjóri á lokahófi fótboltans kom á framfæri frá Eyjafréttum.

„Við erum komnir í hóp þeirra bestu í karlaboltanum. Þökk sé Hemma, strákunum, knattspyrnuráði og öðrum sem standa að baki liðsins. Til hamingju Hemmi, liðið allt, knattspyrnuráð, ÍBV og við öll. Sjálfur vil ég sjá Hemma áfram við stjórnvölinn. Og Jón Óli, þú reddar þessu næsta ár,“ segir í kveðjunni sem Ómar Garðarsson, ritstjóri Eyjafrétta skrifar undir.

 

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.