Herjólfsmál til umræðu
3. mars, 2022

Lífleg umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í gær. Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., kom á fund bæjarráðs og greindi frá stöðu félagsins. Meðal annars fór Hörður Orri yfir farþegafjölda og rekstur ársins 2021, rekstraráætlun fyrir árið 2022, rekstrarniðurstöðu janúarmánaðar 2022 og stöðuna á mönnun.

Ánægjulegt er að bæta eigi úr upplýsingagjöf
Þá lagði fulltrúi D lista fram eftirfarandi bókun. “Ánægjulegt er að bæta eigi úr reglulegri upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa vegna málefna Herjólfs ohf. í kjölfar athugasemda bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks á síðasta bæjarstjórnarfundi. Samkvæmt eigendastefnu Herjólfs ohf. sem meirihluti bæjarstjórnar samþykkti kemur fram að samskipti milli eigenda og fyrirtækisins skuli vera eftir formlegum leiðum og leitast skal við að beina þeim í farveg aðalfunda og reglubundinna eigendafunda. Upplýst umræða um félagið gagnast m.a. kjörnum fulltrúum annars vegar sem fulltrúum eigenda félagsins og hins vegar í hagsmunagæslu samfélagsins. Auk þess uppfyllir bæjarstjórn betur með opinni umræðu um málefni félagsins ákvæði eigendastefnu þar sem stendur að; “handhafar eigendavalds leitast við að efla upplýsta og lýðræðislega umræðu um málefni Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. og samgöngur milli lands og Eyja á vettvangi sveitarstjórnarinnar og á fundum eigenda.””

Allir kjörnir fulltrúar bera ábyrgð
Því var svarað með bókun frá fulltrúum E og H lista. Upplýsingaflæði frá Herjólfi ohf. til bæjarráðs og bæjarstjórnar verður gott hér eftir sem hingað til. Fulltrúar félagsins hafa komið reglulega inn á fundi bæjarráðs og fundað með bæjarstjórn. Það er því ekkert nýtt að kjörnir fulltrúar séu upplýstir um stöðu félagsins. Þá er sérstaklega ánægjulegt að fulltrúi sjálfstæðisflokksins í bæjarráði átti sig nú á því að allir kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á rekstri félagsins. Samstaða um samgöngumál er mikilvæg nú sem aldrei fyrr. Gagnkvæm virðing og traust þarf að ríkja og kjörnir fulltrúar þurfa að sameinast um að byggja upp slíkt traust.

Að lokum bókaði fulltrúi D lista. “Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa aldrei hlaupist undan ábyrgð gagnvart málefnum Herjólfs þrátt fyrir ítrekaðar ásakanir meirihluta um slíkt.”

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst