Herjólfur - Átta ferðir á dag í júlí og fram í ágúst

Megin tilgangur og markmið með rekstir Herjólfs ohf. er að bæta þjónustu við viðskiptavini félagsins og ekki síst samfélagið sjálft. Því hefur verið tekin ákvörðun um að bæta við áttundu ferðinni í siglingaráætlun skipsins á tímabilinu 1. júlí – 11. ágúst 2024.

Með öflugri markaðssetningu og aukningu ferða hefur farþegum og bílum fjölgað mikið á þessu tímabili síðustu tvö ár, með aukningu ferða er verið að koma til móts við aukna eftirspurn.

Áður auglýst siglingaáætlun um verslunarmannahelgina helst óbreytt. Um er að ræða daganna 2-5 ágúst.

Allir þeir farþegar sem eiga bókað á þessu tímabili koma til með að fá send uppfærð brottfaraspjöld með nýjum tímasetningum á næstu dögum. Þegar er opið fyrir bókanir. Brottfarir koma til með að færast sem hér segir:

Vestmannaeyjar brottför :
07:00 – Óbreytt
09:00 – Áður ferð kl. 09:30
11:00 – Áður ferð kl. 12:00
13:00 – Ný ferð í áætlun
16:00 – Áður ferð kl. 14:30
18:00 – Áður ferð kl. 17:00
20:00 – Áður ferð kl. 19:30
22:00 – Óbreytt

Landeyjahöfn brottför:

08:00 – Áður ferð kl. 08:15
10:00- Áður ferð kl. 10:45
12:00 – Áður ferð kl. 13:15
14:00 – Ný ferð í áætlun
17:00 – Áður ferð kl. 15.45
19:00 -Áður ferð kl. 18:15
21:00 – Áður ferð kl. 20:45
23:00 – Áður ferð kl. 23:15

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.