Herjólfur III enn án haffærniskírteinis
Herjólfur IV
Herjólfur III við bryggju í Vestmannaeyjum.

Prufusigling Herjólfs III í gær gekk mjög vel að sögn G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar, en enn á eftir að klára ákveðna þætti áður en nýtt haffærniskírteini verður gefið út.

„Siglingin í gær gekk mjög vel og verið er að leggja lokahönd á undirbúninginn,“ segir Pétur í samtali við Eyjafréttir.

Haffærniskírteini skipsins hefur þó ekki enn verið gefið út. „Það þarf að skoða betur mál varðandi björgunarbúnað, sem vonandi gengur hratt fyrir sig,“ segir Pétur.

Herjólfur III hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga í ljósi stöðunnar á Herjólfi IV, sem siglir nú einungis á annarri skrúfu, og hafa margir kallað eftir því að skipið verði tiltækt sem varakostur í samgöngum við Vestmannaeyjar.

Nýjustu fréttir

Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Gul viðvörun á Suðurlandi – hviður geta farið yfir 30 m/s
Arnór maður leiksins í sigri Karlskrona
Sálmastund með þér
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.