Hjúkrunarfræðin er mín ástríða
6. september, 2024
Iðunn Dísa (önnur frá vinstri) hér með hluta af samstarfsfélögum sínum á HSU í Eyjum. Ljósmynd/hsu.is

Iðunn Dísa Jóhannesdóttir, deildarstjóri hjúkrunar á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum er í viðtali á vefsíðu stofnunarinnar í dag. Viðtalið má lesa í heild sinni hér að neðan.

Iðunn fæddist 9. október 1961 í Eyjum og er alin þar upp. Hún starfaði hjá Ísfélagi Vestmannaeyja í fjórtán ár eftir framhaldsskólanám, fyrst í fiskvinnslu og seinna sem launagjaldkeri. Árið 1995 hóf Iðunn svo störf á  Sjúkrahúsi Vestmannaeyja sem síðar varð Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Þar var hún fyrst á sjúkradeild sem sjúkraliði og seinna sem hjúkrunarfræðingur eftir fjarnám við Háskólann á Akureyri. Hún hefur verið á heilsugæslunni undanfarin fjögur ár, en þar eru sjö stöðugildi hjúkrunarfræðinga og þrjú stöðugildi sjúkraliða.

ÓGLEYMANLEG JAPANSFERÐ
Iðunn er gift Ágústi Einarssyni rafvirkja. „Við höfum gengið saman lífsins veg frá því við vorum 16 og 17 ára gömul og áttum 40 ára brúðkaupsafmæli núna 1. september. Við eigum tvö börn, tvö tengdabörn og barnabörnin eru fimm. Að auki eigum við einn langömmu og -afastrák og annar er á leiðinni. Aðspurð um áhugamálin segir Iðunn golfið eiga hug hennar allan í augnablikinu. „En ég lifi fyrir að hreyfa mig og finnst gaman að  hafa líkamsræktina fjölbreytta. Fátt er einnig betra en dýrmætar stundir með fjölskyldu og góðum vinum. Ferðalög hafa verið stór þáttur í lífinu og nú síðast fórum við í ógleymanlega ferð til Japans.”

„HÉR VIL ÉG BÚA”
Iðunn fer fögrum orðum um heimabæinn. „Hérna eru stuttar vegalengdir og hér er falleg náttúra. Golfvöllurinn er einn sá besti  á landinu, veitingastaðirnir frábærir og verslanirnar fallegar. Hér býr gott fólk og samfélagið er gott. Hérna ólst ég upp og hérna á ég systkyni, börn, barnabörn, tengdafólk og vini. Hér vil ég vera og hér vil ég búa.”

ELSKAR FAGIÐ
„Hjúkrunarfræðin er mín ástríða. Ég elska að vinna sem hjúkrunarfræðingur og áður sem sjúkraliði. Starfið er bæði fjölbreytt og skemmtilegt þótt auðvitað geti það tekið á, en það er svo miklu sjaldgæfara en hitt. Ég varð barnung móðir og fékk þá innsýn inn starfið þegar ég lá á sjúkrahúsi og fannst það virkilega áhugavert þó að það tæki mig síðan um 20 ár að fara inn á þá braut.”

BESTA VIÐ VINNUSTAÐINN
En hvað er það besta við vinnustaðinn? „Samstarfsfólkið er dásamlegt, starfsandinn góður og það einkennir vinnustaðinn að þar eru allir samtaka í að gera sitt besta.  Við þurfum oft að leysa úr flóknum málum hérna í Eyjum þar sem ekki er um aðra heilbrigðisstofnun að ræða og við erum stolt af þessu háa þjónustustigi, en það skapar stundum óvenjulega mikið álag á HSU í Eyjum. Ég held að það skýrist af því hversu einangrað samfélagið er og hversu stopular samgöngur geta verið, sérstaklega yfir vetrartímann.”

Idunn Hsu IMG 0032
Iðunn Dísa Jóhannesdóttir. Mynd/Bjarni Sigurðsson

NÁNAR UM STARFIÐ
„Í starfi mínu sem deildarstjóri er það í mínum verkahring að halda utan um starfsemina og skipulagið. Starfið felur einnig í sér fundasetur, yfirfara reikninga og tölvusamskipti ásamt ótalmörgum öðrum verkefnum sem eru bæði fjölbreytt og skemmtileg eins og t. d að vinna í móttökunni.  Starfsfólk heilsugæslunnar skiptum með sér mörgum verkefnum;   Má þar nefna umsjón lyfjabúrs, pantanir á lyfjum og vörum,  heimahjúkrun og heimahjúkrunarumsjón, eftirlit með Dignio, sem er eftirlitskerfi skjólastæðinga út í bæ og að framkvæma Rai-möt, bæði upphafs- og framhaldsmöt. Heilsugæslan er jafnframt með ungbarnavernd, skólahjúkrun og sykursýkismóttöku til að nefna fátt eitt. Við erum líka með ljósmóður innan okkar starfshóps á heilsugæslunni sem kemur sér mjög vel.”

TALSVERT ÁLAG
„Eftir daglegan morgunfund skiptum við með okkur verkum og sumt starfsfólk fer að sinna heimahjúkrun meðan önnur fara fram í móttöku eða sinna síma og móttöku. Það er glettilega mikið álag á símanum, en við erum að hringja allt upp í 60 til 80 símtöl á dag. Hjúkrunarmóttakan er sömuleiðis afskaplega annasöm. Ef slys eða mikil veikindi koma upp, þá sér flýtimóttakan um slík verkefni með aðstoð allra á stöð ef á þarf að halda. Mikilvægt er að allir sem leita til okkar hringi á undan sér. Það er gert til að reyna að stytta biðtíma skjólstæðinga okkar. Ef ástand skapast á stöðinni vegna óvæntra veikind eða sjúkrabíla sem koma lengist þessi bið stundum. Móttökuritarar tilheyra  minni starfseiningu ásamt hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum og ég reyni ég að hitta þær daglega. Þær eru andlit stofnunarinnar og gegna ekki síður mikilvægu starfi á heilsugæslunni. Mér finnst mikilvægt að við sem störfum hér vinnum öll í sátt og samlyndi. Rödd allra skipti máli í skipulagi og framkvæmd.”

NÝJUNGAR FRAMUNDAN
Við spyrjum Iðunni um nýja hluti framundan eða á sjóndeildarhringnum í vinnunni. „Það stendur til að byrja með heilsueflandi móttöku í vetur, sem er mjög spennandi verkefni og felur í sér öflugt forvarnarstarf. Það væri jafnframt gagnlegt að hafa dagdeild á heilsugæslunni til að sjá um Monofer- og Venofer-gjafir. Enn fremur hefur verið áætlað að símaþjónustan í 1700 komi okkur til aðstoðar, en það hefur reynst vel á öðrum starfsstöðvum. Til að nefna eitthvað í lokin, þá langar okkur líka til að bjóða upp á fastan tíma í blóðþrýstingsmælingar.”

Fleiri myndir má sjá hér.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 3 Tbl 25
3. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Vsv Logo Blue Vsv
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
29. apríl 2025
17:00
Aðalfundur ÍBV Íþróttafélags
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst