Hljómey: Miðasala hefst á föstudag
Hljomey_ads_IMG_4539
Frá Hljómey í fyrra. Aðsend mynd.

Miðasala á Hljómey mun hefjast á föstudaginn 23. febrúar nk. kl 10:00 á www.hljomey.is og á www.midix.is.

Þann 26. apríl nk. verður haldin stórglæsileg tónlistarhátíð í Vestmannaeyjum í annað sinn. Þegar er búið að tilkynna 3 listamenn sem fram koma á hátíðinni og nóg eftir.

Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að undirbúningur hafi verið í fullum gangi síðan síðasta Hljómey var haldin í apríl árið 2023. Verkefnið sjálft er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni sem unnið er í samvinnu við Vestmannaeyjabæ, Herjólf, The Brothers Brewery, Hótel Vestmannaeyjar, Partyland og Westman Islands Inn.

Setning hátíðarinnar verður fimmtudaginn 25. apríl, og sama kvöld verður árlegt Hljómey pub-quiz á Brothers Brewery. Föstudagskvöldið 26. apríl munu svo sjálfir tónleikarnir fara fram í stofum heimamanna víðsvegar um miðbæ Vestmannaeyja.

Mikilvægt er að hafa í huga að mjög takmarkað magn miða verður í boði á hátíðina, þar sem húsrúm er takmarkað.

Listamennirnir sem bætast við verða kynntir á næstu vikum á heimasíðu hátíðarinnar, www.hljomey.is og á Facebook síðu hátíðarinnar undir Hljómey og á instagram síðu hátíðarinnar og hvetjum við alla til að fylgjast vel með þar. Dagskráin verður svo birt þegar nær dregur hátíðinni sjálfri.

Við kynnum leiks fyrstu þrjá listamenn hátíðarinnar:

GDRN

GDRN er stórkostlegur listamaður og það er mikill heiður fyrir okkur að fá að taka á móti henni í Eyjum. Hún tekur engan aukvisa með sér, en Magnús Jóhann, tónlistarstjóri Íslands ætlar að spila með henni.

KK

KK er auðvitað löngu orðinn ódauðlegur í íslensku tónlistarlífi. Textarnir einlægir og lögin hans hreyfa við okkur öllum. KK kemur einn með gítarinn, segir sögur og syngur öll sín bestu lög á Hljómey þann 26. apríl nk.

Hipsumhaps

Einfaldlega stórkostlegt band. Hipsumhaps hlaut mikið lof fyrir plötuna Best gleymdu leyndarmálin sem að innihélt lög eins og Lífið sem mig langar í og Fyrsta ástin og gaf út plötuna Ást og praktík í lok síðasta árs.

Nánari upplýsingar má fá á hljomeyehf@gmail.com

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.