Við þurfum ekki öll að sigra heiminn. Margt smátt gerir eitt stórt og þannig ber okkur að hugsa þegar kemur að aðgengi. Við skulum fyrst og fremst huga að okkar nærumhverfi og þeim verkefnum sem við sjálf vinnum að og standa okkur nærri. Hér koma nokkrar hugmyndir um hluti sem ég tel mikilvæga og ættu allir að geta fundið eitthvað sem þeir geta gert:
Stofnanir og fyrirtæki þurfa að innleiða aðgengi í alla sína vinnuferla og hafa aðgengi til hliðsjónar í öllum ákvörðunum sem teknar eru. Aðgengismál eiga að vera hluti af fyrirtækjamenningu. Hér koma nokkur dæmi um aðgengi innan stofnana og fyrirtækja:
Þegar verið er að byggja, breyta eða endurnýja húsnæði skal huga að aðgengismálum frá upphafi. Kröfur um aðgengi og algilda hönnun má m.a. finna í núgildandi byggingarreglugerð. Einnig þarf við hönnun, breytingu eða skipulagningu á svæði utandyra að huga að aðgengi og má þar nýta sér nýlegar leiðbeiningar um „Hönnun fyrir alla – algild hönnun utandyra“ sem nálgast má á vef Vegagerðarinnar. Við smíði á nýju vefsvæði eða smáforriti er brýnt að huga að aðgengismálum frá upphafi og í gegnum allt ferlið. Notast skal við WCAG aðgengisstaðalinn þegar kemur að stafrænu aðgengi, gera notendaprófanir o.s.frv.
Einstaklingar sem vilja láta gott af sér leiða og stuðla að auknu sjálfstæði blindra og sjónskertra geta t.d. sótt smáforritið Be My Eyes og skráð sig sem sjálfboðaliða. Almenningur getur einnig sent ábendingar á sveitarfélög í gegnum heimasíður þeirra, komi þeir auga á eitthvað sem betur má fara, t.d. bilaðir ljósastaurar, illa farnir göngustígar, óaðgengilegar byggingar eða vefsíður o.s.frv. Komum ábendingum áleiðis frekar en að bölva í hljóði.
Listinn hér að ofan er langt frá því tæmandi og það er fjölmargt sem við sem einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir getum gert, auk ríkis og sveitarfélaga.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, vilt óska eftir ráðgjöf eða fá frekari upplýsingar, hvet ég þig til að hafa samband við okkur hjá Blindrafélaginu í síma 525 0000 eða senda tölvupóst á netfangið adgengi@blind.is.
Vissir þú að:
Blindrafélagið er í samstarfi við ýmis fyrirtæki og er með umboð fyrir ýmsar vörur hérlendis er snúa að aðgengismálum. Við getum veitt ráðgjöf og útvegað lausnir sem stuðla að bættu aðgengi, hvort sem það er í raunheimum eða stafrænum lausnum:
Höfundur er Hlynur Þór Agnarsson, aðgengisfulltrúi Blindrafélagsins
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst