Hvað var keypt þegar Vestmannaeyjar voru seldar?
Þjóðhátíð 2023 - brekkan - minni
Meðal þess sem óbyggðanefnd fyrir hönd fjármálaráðherra gerir kröfu um að fá eru brekkurnar í Herjólfsdal. Eyjar.net/Tryggvi Már

Hvenær er 1. apríl?

Útspil Óbyggðanefndar, sem krefst fyrir hönd íslenska ríkisins að stór hluti Vestmannaeyja skuli teljast þjóðlenda, bar því miður ekki upp á 1. apríl.

Af þeim sökum þykir rétt að rifja upp síðustu sölu Vestmannaeyja þar sem ríkið var einmitt sá er seldi.

Hér verður því leitast við að svara einfaldri spurningu: Hvað keypti bæjarsjóður Vestmannaeyja af ríkinu hinn 23. ágúst 1960?

Samþykktir bæjarráðs og staðfesting bæjarstjórnar Vestmannaeyja um málið

Í fundargerð bæjarráðs Vestmannaeyja frá 9. maí 1960 er eftirfarandi samþykkt að finna (sem staðfest var á næsta bæjarstjórnarfundi, hinn 16. júní sama ár):

Bæjarráð samþykkti að fela Guðlaugi Gíslasyni, bæjarstjóra, að ræða við ríkisstjórnina um væntanleg kaup Vestmannaeyjabæjar á lóðum og lendum í Vestmannaeyjum, heimalandi og úteyjum samkvæmt nýlega afgreiddum lögum á Alþingi.

Frumvarpið lagt fram á Alþingi

Þegar lögin sjálf eru könnuð, eða fremur sjálfur aðdragandinn að lagasetningunni, ber svo við að í upphaflegum drögum er ekki kveðið svo fast að orði sem í samþykkt bæjarráðs. Í þess stað stendur í 1. grein frumvarpsins: Ríkisstjórninni er heimilt að selja Vestmannaeyjakaupstað land allt á Heimaey í Vestmannaeyjum, sem nú er í eigu ríkisins.

Breyting á frumvarpinu í þinglegri meðferð

Landbúnaðarnefnd, sem var fengin til að yfirfara frumvarpið og bera saman við önnur lög hliðstæðs efnis, gerði í greinargerð sinni athugasemd við að aðeins væri rætt um að selja Heimaey eina.

Einnig telur nefndin rétt að binda ekki söluheimildina við Heimaey eina, heldur nái hún einnig til úteyja, en svo nefnast einu nafni allar aðrar eyjur Vestmannaeyja en Heimaey.

Viðbrögð flutningsmanna frumvarpsins við breytingartillögunni

Karl Guðjónsson þingmaður Alþýðubandalagsins, var einn flutningsmanna frumvarpsins, ásamt Guðlaugi bæjarstjóra úr Sjálfstæðisflokki og Birni Fr. Björnssyni frá Framsóknarflokki. Karl stígur í pontu fjórum dögum eftir að landbúnaðarnefnd hefur skilað áliti sínu og tekur af allan vafa um að flutningsmenn frumvarpsins styðja heilshugar þessa breytingartillögu (sum orðin eru stytt í texta en hér rituð fullum stöfum):

Þetta frumvarp fer fram á, að ríkisstjórninni verði veitt heimild til þess að selja Vestmannaeyjakaupstað land allt í Vestmannaeyjum, sem ríkið er eigandi að. Í frumvarpinu sjálfu er talað um land allt á Heimaey, og hefur nefnd sú, sem leit yfir frumvarpið og bar það saman við önnur lög hliðstæðs efnis, tekið til athugunar, hvort ekki væri vert að orða hér nokkuð öðruvísi frumvarpið, og hefur gert ráð fyrir því og lagt til, að við það verði samþykkt breytingartillaga, að þar sem frumvarpið talar um Heimaey, þar komi í staðinn: í Vestmannaeyjum. — En svo hagar til, að þetta er ekki nein efnisbreyting. Frumvarpið er byggt á þeirri hugsun, að Heimaey, sem er eina byggða eyjan af Vestmannaeyjum, hefur innan sinna vébanda allmargar jarðir, en þær jarðir eiga ítök í úteyjum. En svo sem mönnum sjálfsagt er kunnugt, eru Vestmannaeyjar taldar 14 alls fyrir utan dranga og sker, og er ekki vissa fyrir því, að öllum eignum í úteyjum eða ítökum sé skipt upp á milli jarða, eða a.m.k. var það svo að fornu, að þar var nokkur almenningur svokallaður, sem var ekki takmarkaður undir eignarheimildir einstakra jarða. Þess vegna þykir fortakslausara og betur í samræmi við efni frumvarpsins að segja: land allt í Vestmannaeyjum en Heimaey í Vestmannaeyjum, og hefur nefndin gert breytingartillögu um þetta.

Kári Bjarnason. Eyjar.net/ÓPF

Lögin samþykkt

Breytingartillagan var þvínæst samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og afgreidd með þeim hætti frá efri deild hinn 29. apríl 1960. Daginn eftir að bæjarráð samþykkti formlega að ganga til samninga við ríkið um kaup á Vestmannaeyjum eða 10. maí 1960, varð að lögum eftirfarandi:

Lög um heimild handa ríkisstjórninni til að selja Vestmannaeyjakaupstað land allt í Vestmannaeyjum, sem nú er í eigu ríkisins, og um eignarnámsheimild á lóðar- og erfðafesturéttindum.

Skilningur þingsins á því hvað var selt

En hvaða land átti ríkisstjórnin til að selja bæjarsjóði? Um það ríkti enginn efi í þingsal. Þannig segir Sigurður Ó. Jónsson, sá er síðastur alþingismanna tók til máls áður en lögin voru samþykkt, (sum orðin eru stytt í texta en hér rituð fullum stöfum):

Nú er svo háttað, sem kunnugt er, að ríkið á allt land í Vestmannaeyjum, Heimaey og úteyjar, og hefur svo verið um nokkuð langa hríð, en nú hefur bæjarstjórn Vestmannaeyja óskað eftir því, að ríkisstjórninni yrði heimilað að selja kaupstaðnum landið, og þess vegna er þetta frumvarp, sem hér liggur fyrir, nú flutt.

Það er því skýrt í huga flutningsmanna frumvarpsins, allra þingmanna sem samhljóða greiddu atkvæði með því að lögfesta söluna og allra þeirra sem tjáðu sig um málið í þinglegri meðferð að þessir einstaklingar, fyrir hönd íslenska ríkisins, voru að selja ALLAR Vestmannaeyjar, Heimaey alla og úteyjar allar. Jafnframt er ljóst að þessir sömu alþingismenn höfðu skýra sýn á að heimildin til að selja allar Vestmanneyjar var þeirra þar sem ríkið var að fullu og öllu eigandi.

ellidaey_isl
Ríkið vill eignast allar úteyjar í Vestmannaeyjaklasanum.

Takmarkanir á sölunni

Þrátt fyrir þessa afdráttarlausu niðurstöðu eru takmarkanir á sölunni. Þær eru hins vegar vandlega tilgreindar í afsalinu fyrir kaupunum. Þar segir:

Undanskilið sölu er:

  1. Prestsetursjörðin Ofanleiti, … .
  2. Vitajörðin Stórhöfði.
  3. Lóð undir hús bæjarfógetaembættisins (Tindastóll) og lóð undir fangahús.
  4. Núverandi flugvallaland, auk þess land undir væntanlega þverbraut að stærð 20 ha.
  5. Einstaklingar, félög og stofnanir, sem fengið hafa á leigu lóðir eða landspildur í Vestmannaeyjum, halda rétti sínum samkvæmt þaraðlútandi samningum.

Námar og námarréttindi í hinu selda landi eru undanskilin sölu, svo og jarðhitaréttindi, nema til notkunar fyrir bæjarfélagið.

Landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra, Ingólfur Jónsson, sem undirritaði söluna fyrir hönd ríkisins, lýsti í framhaldinu í afsalinu „kaupandann réttan og löglegan eiganda að framangreindu landi í Vestmannaeyjum, með þeim takmörkunum, er áður greinir“. Þá er tilgreint að „[r]ísi mál út af sölu landsins, má reka það fyrir bæjarþingi Reykjavíkur.“

Fyrri niðurstaða málsins. Afdráttarlaus vilji seljanda og kaupanda til sölu ALLRA Vestmannaeyja

Af samantektinni er ljóst að Alþingi var sér vel meðvitað um að verið væri að selja Vestmannaeyjar allar, með ákveðnum takmörkunum sem tilgreindar eru hér að ofan, og að seljandi, íslenska ríkið, hefði verið fullur eigandi að öllum Vestmannaeyjum er að sölu kom. Jafnafdráttarlaus er vilji kaupanda til að kaupa Vestmannaeyjar allar. Líklega eru fá dæmi um það á Alþingi að svo fullur  einhugur ríki um að skýrt og afdráttarlaust skuli nú talað svo að ekki komi til þess síðar að efi vakni nokkru sinni um hver var vilji og hver var ákvörðun þess er seldi og hvað var selt.

Síðari niðurstaða málsins. Hvenær er 1. apríl?

Af ofansögðu má draga þá almennu ályktun að 1. apríl geti borið upp á hvaða dag sem er, mánudagurinn 12. febrúar 2024 var að minnsta kosti vonandi einn slíkur skemmtidagur fyrir Vestmannaeyinga.

 

Kári Bjarnason

https://eyjar.net/krofugerdin-kom-a-ovart/

https://eyjar.net/krofur-fjarmalaradherra-ekki-obyggdanefndar/

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Erlingur frá Eyjalistanum
Sandra náði áfanga með íslenska landsliðinu
Með fullfermi eftir örstutta túra
Friðrik Dór mætir á Þjóðhátíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
40 ára aldursmunur á vinningshöfum
Hvert viljum við stefna?
Margrét Rós: „Ég er hvorki í fýlu né lít á mig sem tapara“

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.