Hverjir færu á þing úr Suðurkjördæmi?
Althingishus Tms Cr 2
Alþingi Íslendinga. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Á föstudaginn birti Gallup könnun á fylgi flokka sem bjóða fram til Alþingis. Gerð var netkönnun dagana 1.-31 október.

Ef við skoðum Suðurkjördæmi sérstaklega í þessari könnun má sjá að Sjálfstæðisflokkur hefur mest fylgi, eða 22,3%. Næst mesta fylgið hefur Miðflokkurinn sem hefur 21,6%, og þar fast á eftir er Samfylkingin með 19,4%.

Þar á eftir er Viðreisn með 9,8%. Því næst er Flokkur fólksins með 9,2%. Framsókn fengi 7,8%. VG mælist með 3,4% og Píratar 2,9%. Aðrir fá minna. Alls svöruðu 691 í kjördæminu.

Ef að við skoðum kjördæmakjörna þingmenn út frá þessum niðurstöðum þá væru þetta þingmenn Suðurkjördæmis:

Sjálfstæðisflokkurinn (D-listi):

  1. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, Hveragerði.
  2. Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og ritari Sjálfstæðisflokksins Grindavík

 

Miðflokkurinn (M-listi):

  1. Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri, Vestmannaeyjum.
  1. Heiðbrá Ólafsdóttir, lögfræðingur og kúabóndi, Hvolsvelli.

 

Samfylkingin (S-listi):

  1. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs hjá ríkislögreglustjóra, Kópavogi.
  2. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri hjá Hörpu,

 

Viðreisn (C-listi):

  1. Guðbrandur Einarsson, alþingismaður, Reykjanesbæ.

 

Flokkur fólksins (F-listi):

  1. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, alþingismaður og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, Garðabæ.

 

Framsóknarflokkurinn (B-listi):

  1. Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri, Reykjavík.

 

Sulur Konnun Gallup

Nýjustu fréttir

Gísli Stefáns – Tekur ekki þátt í prófkjöri
Skjárinn sem stal æskunni
Þrjú lið frá ÍBV í bikarúrslitum um helgina
Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar
Ísfélagið áfram einn af aðalstyrktaraðilum KFS
Útflutningsverðmæti sjávarafurða um 360 milljarðar
Eyjarnar lönduðu fullfermi í Eyjum um helgina
Vestmannaeyjar – Alveg milljón
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.