Hvorki staðfesta né hrekja frétt um hvali á leið til Eyja
Vegna fréttar Fréttablaðsins og fréttasíðunnar visir.is (http://www.visir.is/stefnir-i-nytt-keiko-aevintyri/article/2016161229989) um að unnið væri að því að flytja þrjá hvali frá Kína til Vestmannaeyja vill Vestmannaeyjabær koma eftirfarandi á framfæri:
Ferðaþjónusta í Vestmannaeyjum hefur vaxið mikið á síðustu árum og þá mest í tengslum við siglingar í Landeyjahöfn. �?essi vöxtur hefur hefur fjölgað störfum og bætt lífsgæði íbúa verulega. Stefna Vestmannaeyjabæjar er að halda áfram að efla þessa atvinnugrein og er þar meðal annars horft til samstarfs við sterkra aðila erlendis. Afar mikilvægt er að vel til takist enda er störfum í sjávarútvegi stöðugt að fækka og því aukin þörf á nýsköpun og þróun í sjávarbyggðum.
Vestmannaeyjabæ er kunnugt um vilja WDC-dýraverndunarsamtakanna og Merlin til að vinna að velferð hvala og höfrunga. �?á er ljóst að sú mikla uppbygging sem átt hefur sér stað hjá �?ekkingarsetri Vestmannaeyja (�?SV) á seinustu árum auk sterkra innviða samfélagsins hér í Vestmannaeyjum kann að gera Vestmannaeyjabæ og �?SV að mikilvægum samstarfsaðila fyrir alla þá aðila sem starfa á sviði velferðar sjávardýra og ferðaþjónustu.
Vestmannaeyjabær mun að svo stöddu hvorki staðfesta né hrekja þá frétt að unnið sé með erlenda stórfyrirtækinu Merlin á sviði ferðaþjónustu og dýravelferðar. Hitt er þó með öllu ljóst að Vestmannaeyjabær vinnur ekki að neinu því verkefni sem líkist svo kölluðu Keikó ævintýri en það verkefni gekk fyrst og fremst út á að sleppa dýri lausu í náttúruna sem alla tíð hafði verið alið upp af mönnum.

Nýjustu fréttir

Yfir tvær milljónir umbúða fara árlega í gegnum móttökuna í Eyjum
Tvöfaldur handboltadagur í Íþróttamiðstöðinni
Leggja til lækkun fasteignaskatts
ÍBV hafði betur í sjö marka leik gegn bikarmeisturunum
Nýir eigendur taka við Kránni
Undirbúa starfslok hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands
Hvað ef internetið lokaði klukkan 18?
Dýpið gott í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.