Íbúafundur í dag
RENDER FJOLBYLI - minni
Svæðinu er skipt upp í sex reiti. Tvo reiti fyrir raðhús og einbýli, einn fyrir fjölbýlishús, einn fyrir leikskóla, einn fyrir núverandi veituhús og að lokum einn fyrir einbýlishús og útivistarsvæði við Löngulág. Myndir/Trípólí Arkitektar

Í dag verður íbúafundur um fyrirhugaða uppbyggingu á malarvellinum í Löngulág. Á dögunum var auglýst tillaga á vinnslustigi að breytingu aðalskipulags Vestmannaeyja 2015-2035 og nýtt deiliskipulag fyrir íbúðabyggð og leikskóla við Malarvöll.

Tillagan gerir ráð fyrir allt að 110 íbúðum í blandaðri byggð einbýlishúsa, raðhúsa, lítilla fjölbýla og stærri fjölbýlishúsa með lyftu. Gert er ráð fyrir bílakjallara fyrir raðhús og fjölbýli. Grænt svæði við Löngulág er varðveitt og hugað er að skjólgóðum og sólríkum dvalarsvæðum í byggðinni. Deiliskipulagið gerir einnig ráð fyrir 6-10 deilda leikskóla sem mögulegt er að byggja upp í áföngum.

Íbúafundurinn er eins og áður segir í dag, þriðjudaginn 11. júní klukkan 17:30 í Ráðhúsi Vestmannaeyja við Kirkjuveg 50.

Nánari upplýsingar um tillöguna má finna hér.

Nýjustu fréttir

Laxey – Metnaðarfull uppbygging sem styrkir atvinnulíf og framtíð samfélagsins
Monopoly eða Matador
Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.