ÍBV og Haukar mættust í undanúrslitum bikarkeppni karla í handknattleik í Laugardalshöll í kvöld. Eyjamenn leiddu leikinn frá upphafi og sigruðu nokkuð örugglega, 33-27.
Fjórir leikmenn ÍBV skoruðu sex mörk. Þeir Daniel Vieira, Elmar Erlingsson, Kári Kristján Kristjánsson og Arnór Viðarsson. Dagur Arnarsson skoraði fjögur og Petar Jokanovic stóð sig vel í markinu og varði 13 skot. Sannarlega glæsileg frammistaða hjá strákunum.
ÍBV leikur til úrslita um bikarinn á laugardaginn gegn Stjörnunni eða Val sem mætast klukkan 20.15 í kvöld.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs