Ingi í stjórn KSÍ
DSC_3960_ingi_sig
Ingi Sigurðsson. Eyjar.net/ÓPF

Ársþingi KSÍ lauk með kosningu til stjórnar síðdegis í dag. Á þinginu var Þorvaldur Örlygsson kjörinn formaður. Hafði hann betur gegn þeim Guðna Bergssyni og Vigni Má Þormóðssyni.

Sjö manns voru í framboði um fjögur laus sæti í stjórn. Eyjamaðurinn Ingi Sigurðsson var einn þeirra sjömenninga sem í framboði voru.

Ingi hlaut næst flest atkvæði, eða 100 talsins. Flest atkvæði hlaut Þorkell Máni Pétursson 114 atkvæði.

Eftirtaldir voru í framboði um þessi fjögur sæti og skiptust atkvæðin á eftirtalinn hátt:

  • Ingi Sigurðsson – 100 atkvæði
  • Pálmi Haraldsson – 84 atkvæði
  • Pétur Marteinsson – 39 atkvæði
  • Sigfús Ásgeir Kárason – 73 atkvæði
  • Sigurður Örn Jónsson – 42 atkvæði
  • Sveinn Gíslason – 76 atkvæði
  • Þorkell Máni Pétursson – 114 atkvæði

Eftirtaldir munu sitja í stjórn KSÍ til næstu tveggja ára:

  • Ingi Sigurðsson
  • Pálmi Haraldsson
  • Sveinn Gíslason
  • Þorkell Máni Pétursson

Tveggja ára kjörtímabili eftirtalinna í stjórn KSÍ lauk rétt í þessu:

  • Borghildur Sigurðardóttir
  • Ívar Ingimarsson
  • Sigfús Ásgeir Kárason
  • Pálmi Haraldsson

Auk Inga, Pálma, Sveins og Þorkels Mána sitja Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, Helga Helgadóttir, Tinna Hrund Hlynsdóttir og Unnar Stefán Sigurðsson í stjórn og lýkur kjörtímabili þeirra í febrúar 2025.

Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga

Tveggja ára kjörtímabili eftirtalinna aðalfulltrúa landsfjórðunganna lauk á 78. ársþingi KSÍ:

  • Eva Dís Pálmadóttir – Austurland
  • Oddný Eva Böðvarsdóttir – Vesturland
  • Ómar Bragi Stefánsson – Norðuland
  • Trausti Hjaltason – Suðurland

Eftirtaldir buðu sig fram sem aðalfulltrúar landsfjórðunga til tveggja ára og voru þau sjálfkjörin:

  • Guðmundur Bj. Hafþórsson – Austurland
  • Trausti Hjaltason – Suðurland
  • Tryggvi Gunnarsson – Norðurland
  • Þorsteinn H. Harðarson – Vesturland

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.