Íris bæjarstjóri - Jólakveðja
24. desember, 2022

Gleðilega hátíð.

Nú er aðventan enn einu sinni gengin í garð og jólin komin; þau fyrstu síðan 2019 án samkomutakmarkana.  Samvera með fjölskyldunni er verðmæt og jólahátíðin býr til margar fjölskyldustundir sem skapa minningar með okkar besta fólki. Það er einmitt ekki síst á stórhátíðum eins og jólum og áramótum sem við finnum hvað þessi nánd við ástvini er okkur dýrmæt.

Árið sem nú er að renna sitt skeið hefur á margan hátt verið gjöfult og gott fyrir okkur sem erum svo heppin að búa hér í Vestmannaeyjum. Að byggja upp gott samfélag er langhlaup og mikilvægt að halda áfram á þeirri braut sem við höfum verið á. Það mun heldur ekki skorta spennandi verkefni og ögrandi áskoranir á nýju ári!

Allir Vestmannaeyingar sem aldur hafa til muna eftir að hafa labbað um miðbæinn í aðdraganda jólanna og heyrt hina ljúfu jólatónlist sem ómaði frá jólabjöllunni sem strengd hafði verið upp á milli kaupfélagshúsanna. Hún var einstaklega jólaleg og hátíðleg og rammaði inn miðbæinn. Hún er horfin en í staðin er komin fallegur miðbæjarbogi. Ég ólst upp á Vestmannbrautinni og þegar trúðurinn var komin í gluggann hjá Axel Ó. þá vissi ég að það styttist í jólin.  Hann er enn að gleðja börn og leika listir sínar eins og hann hefur gert síðan 1964.  Annað minningabrot í aðdraganda jóla eru ferðirnar til Gerðu á Múla í búðina hennar, þar voru gersemar sem stundum enduðu í jólapakka undir tré. Ég man sérstaklega eftir forláta Barbí fataskáp sem við systur fengum saman í jólagjöf. Búðin hennar Gerðu var mikill ævintýraheimur allt árið um kring en alveg sérstakur á aðventunni. Það eru þessar hefðir, þessir föstu punktar, sem gleðja í aðdraganda jólanna og búa til  hina sönnu jólastemmingu.

Bæjarstarfsmenn hafa einnig lagt mikið á sig til að fanga jólaandann. Nærtækast er að minna á jólaskreytinguna úr gömlu Rafveitunni við Heimagötu, eða eftirlíkingu af þeirri sem fór undir hraun, sem Jóhann Jónsson, Jói í Laufási og strákarnir í Þjónustumiðstöðinni, settu fyrst upp á nýja hraunið fyrir jólin 2018. Staðsetning hennar er einstaklega viðeigandi og núna finnst manni að jólin séu komin þegar kviknar á ljósunum ofan á hrauninu sem hylur gamla staðinn.

Á undanförnum árum hafa íbúarnir lagt jafnvel enn meira upp úr skreytingum við hús sín og ýmiskonar ævintýragarðar verða til í kringum hátíðarnar. Allur bærinn fyllist strax á aðventunni af notalegri stemmingu eins og sjá mátti þegar kveikt var á jólatrénu tæpum mánuði fyrir jól.  Sá mikli fjöldi sem þá kom saman er vitnisburður um sameiginlegan jólaanda.

 

Um leið og ég óska öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs ber ég fram þá von að sá kærleiksandi sem fylgir jólunum sé með okkur ekki bara yfir jólahátíðina heldur allt árið.

Kærleikskveðja

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri.

Myndina tók Addi í London í gærkvöldi þegar miðbærinn iðaði af mannlífi.

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst