Ísfélagið kaupir vinnslubúnað af Marel

Ísfélag Vestmannaeyja hefur skrifað undir samning við Marel um kaup á FlexiCut vatnskurðarvél og öðrum búnaði sem settur verður upp í fiskvinnslu fyrirtækisins í Vestmannaeyjum.

Skrifað var undir samninginn á sjávarútvegsýningunni í Brussel í dag. FlexiCut vatnskurðarvélinni fylgir FleXitrim forsnyrtilína og FlexiSort afurðardreifing. Vinnslubúnaðurinn býr yfir mikilli sjálfvirkni og eykur afkastagetu í vinnslu og gæði vörunnar. „Við erum fullir eftirvæntingar yfir þeim ávinningi sem felst í þessari lausn,“ segir Björn Brimar Hákonarson, framleiðslustjóri hjá Ísfélaginu í samtali við Fiskifréttir.

Nýjustu fréttir

Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.