Ísfélag Vestmannaeyja hefur bætt við skipakost sinn en skipið heitir Ginneton og var smíðað hjá Karstensen í Danmörku 2006. Um er að ræða uppsjávarskip bæði fyrir nót og flotvörpu og er með 1348m3 tankarými fyrir afla. Skipið er 1337 brúttotónn, 62,6m að lengd og 12,8m á breidd. Aðalvél skipsins er af gerðinni MAN Alpha Diesel 9L27/38 og er 2999 kW.
“Við reiknum með að taka við skipinu í desember hér í Eyjum og verðum klárir í loðnuvertíð sem fyrst,” sagði Eyþór Harðarson útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu í samtali við Eyjafréttir




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.