Ísfélagið – Nýtt met í loðnufrystingu

„Nú er loðnuvertíðin komin í sjötta gír og framundan er hrognafrysting hjá Ísfélaginu. Það er þó ekki það eina fréttnæma en nýtt met var slegið hjá frystihúsi félagsins í Vestmannaeyjum þegar framleidd voru 5800 tonn af frystri loðnu, sem skiptist þannig að 4015 tonn voru hrognaloðna á Asíu og 1781 tonn blönduð loðna á markað í austur Evrópu. Þetta var framleitt á einungis15 dögum og mest magn fryst á einum degi voru tæp 500 tonn. Eldra met var 4400 tonn í fyrra“ segir á Fésbókarsíðu Ísfélagsins í dag.

„Útgerðin hefur einnig verið á fullum snúningi en skip félagsins eru búin að veiða um 24.000 tonn. Öll fjögur uppsjávarskip félagsins hafa verið á veiðum og skiptast á að landa í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.

 

Meðfylgjandi mynd tók Finnsi á Sigurði VE þegar aflinn var sóttur rétt fyrir utan Eyjar um síðustu helgi.

Nýjustu fréttir

Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.