Ís­lenskur út­gerðar­maður, evrópsk verka­kona
eftir Sigurgeir B. Kristgeirsson
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Þorsteinn Pálsson, framámaður í Viðreisn var álitsgjafi í þætti á Stöð 2 fyrir stuttu. Þar sagði hann meðal annars: „Verkakona í frystihúsi þarf að borga þrefalt hærri vexti af íbúðinni sinni en eigandi frystihússins þegar hann fjárfestir“. Til þessara ummæla hefur víða verið vitnað. En hvert skyldi nú sannleiksgildi þessara orða vera? Um það get ég upplýst Þorstein og þá sem hafa áhuga á að kynna sér sannleikann.

  • Í fyrsta lagi verða vextir Vinnslustöðvarinnar á yfirstandandi ári af erlendum lánum (aðallega evrum) ríflega 8%.
  • Í öðru lagi verða vextir erlendra lána (aðallega dollara) í fiskvinnslu í Eyjum sem ég þekki til um 11%.
  • Í þriðja lagi verða vextir dótturfélags Vinnslustöðvarinnar í Portúgal af lánum þess í ár um 6%, en lánin eru öll í evrum.
  • Í fjórða lagi eru óverðtryggðir vextir nákomins ættingja míns liðlega 8% af húsnæðisláni í íslenskum krónum.

 

Dæmi nú hver fyrir sig um sannleiksgildi orða Þorsteins Pálssonar. Þess ber að geta að erlend lán Vinnslustöðvarinnar og fiskvinnslunnar í Eyjum eru tekin hjá íslenskum bönkum.

Skýring hærri vaxta

Þorsteinn Pálsson er fyrrverandi fjármálaráðherra. Við verðum að gera meiri kröfu til hans af þeim ástæðum. Þorsteinn þekkir nægjanlega marga í Eyjum eða innan sjávarútvegsins til að taka eitt eða fleiri símtöl til að átta sig á aðstæðum dagsins í dag. Hann þekkir áreiðanlega einnig vel til innan bankakerfisins og hefði hæglega getað aflað sér upplýsinga.

Í ágætri grein Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka, sem hann birti nýverið lýsir hann hvernig regluverk og skattlagning hefur áhrif á vaxtakjör íslenskra fyrirtækja og heimila. Þar lýsir hann því af hvaða ástæðu dótturfélag Vinnslustöðvarinnar í Portúgal greiðir lægri vexti í evrum en móðurfélagið á Íslandi sem er þó í ábyrgð fyrir megninu að lánum dótturfélagsins en þessar eru þær helstar:

  • Vegna hærri eiginfjárkröfur til bankakerfisins.
  • Vegna hærri skatta á íslenska banka.
  • Vegna hærri óvaxtaberandi bindiskyldu.
  • Vegna annarra álaga og íþyngjandi reglna íslenskra stjórnvalda sem rakin eru í greininni. Ein ástæðan er lakara lánshæfismat bankanna sem er afleiðing neikvæðrar umræða stjórnmálamanna um bankakerfið, auk annarra atriða.

 

Með milliliðalausum viðskiptum við erlenda banka má komast hjá íslenska álaginu sem Benedikt nefnir í grein sinni. Afleiðingar þess eru að veikjum íslenska bankakerfið (samkeppnishæfni þess minnkar), tekjur verða minni, bankamönnum fækkar, skattar til ríkis og sveitarfélaga lækka og við búum til spíral sem aftur leiðir til þess að vaxtaálög hækka (vegna óhagkvæmni) og lífskjör okkar versna. Af þessu leiðir svo að verðmæti bankanna lækkar og hluthafar þeirra tapa, þar á meðal íslenska ríkið sem á stóran hlut í bankakerfinu!

Vandinn að segja satt

Þorsteinn Pálsson var þingmaður Suðurkjördæmis á árunum 1983 – 1999. Við upphaf þingferilsins árið 1983 geysaði óðaverðbólga en í lok þingmannsferils hans voru íslensk efnahagsmál komin í þokkalegt jafnvægi. Á þessum tíma kom hann oft til Eyja og hitti þar bæði fiskverkafólk sem og útvegsbændur. Hann þekkti vel til stöðu sjávarútvegs enda var hann lengi sjávarútvegsráðherra.

Árið 2011 skrifaði Þorsteinn grein sem bar heitið: Vandinn að segja satt en þar segir meðal annars: „Óumdeilt er að aflahlutdeildarkerfið leiddi til samþjöppunar í rekstri. Fiskiskip eru færri, sjómenn eru færri og fiskvinnslustöðvar eru færri. Trúlega er þessi mikla hagræðing helsta undirrót óánægjunnar. Ekki er unnt að mæla á móti því að þessi hagræðing gekk gegn hagsmunum nokkurra byggða og útgerða sem hurfu úr rekstri og sjómanna sem misstu vinnu. Á móti kemur að ekki er lengur þörf á millifærslum og gengislækkunum á kostnað almennings. Með rökum er ekki unnt að staðhæfa að efnahagsáhrif kerfisins hafi verið öndverð almannahagsmunum eða stangist á við þjóðareignarsjónarmiðið. Vissulega má deila um hvort er mikilvægara: Fjöldi starfa eða hagræðing. Það er val. Að lofa hvoru tveggja er skrök.“ Hér er allt satt og rétt sem Þorsteinn skrifar eins og staðreyndir dagsins í dag leiða í ljós.

Sannleikur dagsins í dag

Viðreisnarmaðurinn, Þorsteinn Pálsson, hefur hvorki heimsótt fiskverkakonur né útvegsbændur í Eyjum í tæpan áratug, svo ég viti til, til að kynna sér stöðu þeirra. Þá hefði hann nefnilega áttað sig á að fiskverkakonurnar eru frá Evrópu, einkum Portúgal og Póllandi. (Í Póllandi er ekki evra. Grunnvextir í Póllandi hafa verið svipaðir og á evru, en þó ívið hærri.) Þær eru ekki heima hjá sér til að njóta lágra vaxta í þeim löndum eða eru í Eyjum vegna veðurblíðu, heldur vegna hárra launa og möguleika á atvinnu. Laun evrópsku kvennanna í Eyjum eru nú með þeim hæstu sem þær eiga kost á innan evrópska efnahagssvæðisins. Laun fiskvinnslufólks í nokkrum löndum Evrópusambandsins sem við þekkjum til eru á bilinu 7 – 15 evrur á tímann. Þar til viðbótar bætast launatengdir skattar og önnur gjöld. Kostnaður evrópsks fiskvinnslufyrirtækis á unnin tíma er þá á bilinu 10 – 20 evrur. Sambærilegur kostnaður Vinnslustöðvarinnar er rúmlega 30 evrur á klukkustundina. Eftir þessu sækist evrópska fiskvinnslufólkið og þess vegna er það á Íslandi en ekki heima hjá sér að njóta lágra vaxta.

Hvers vegna greiðir sjávarútvegurinn svo há laun?

Þorsteinn Pálsson á heiður af því að hafa stutt við þær breytingar sem hann sjálfur lýsti hér að ofan. Í sömu grein sagði Þorsteinn einnig: „Krafan um að hámarka arðinn af auðlindinni í þágu heildarinnar er eitt af mikilvægustu viðfangsefnum stjórnmálanna. Spurningin er bara: Hvernig? Hagræðingin styrkir krónuna sem aftur bætir kjör almennings. Þetta lögmál virkar líka í hina áttina. Vilja menn það?“

Hér er einmitt kjarni málsins. Hagræðing innan sjávarútvegsins hefur styrkt krónuna og bætt kjör almennings eða viljum við fara í hina áttina eins og Þorsteinn lýsir svo vel. Sjávarútvegurinn hefur getu til að til að greiða há laun eins og ég hef lýst, verið arðssamur og staðið undir byggð víðsvegar um landið eins og Þorsteinn lýsti í annarri grein sem hann birti árið 2009 undir fyrirsögninni: Markaðslausnir í sjávarútvegi:

„Þetta kerfi hefur leitt til þess að við eigum nú færri en stærri og sterkari sjávarútvegsfyrirtæki en áður. Þau geta flest jafnað innbyrðis sveiflur í veiði og markaðsverði á ákveðnum tegundum. Við stöðug efnahagsskilyrði skila þau arði sem nýtist til fjárfestingar og atvinnusköpunar á öðrum sviðum. Að sama skapi eflast bæjarfélögin.“ Einmitt þetta hefur gerst í Eyjum þar sem fyrrum eigendur útgerðar hafa ráðist í stærstu einstöku fjárfestingu Eyjanna frá upphafi byggðar þar.

Þorsteinn annar

Þorsteinn Pálsson er ekki lengur í forsvari fyrir Sjálfstæðisflokkinn heldur Viðreisn en sá flokkur hefur einmitt talað fyrir uppboðum og fyrningu aflaheimilda. Það var mér einkar ánægjulegt að sjá svar hans við þeim hugmyndum og Samfylkingarinnar sem hann birti í grein sinni árið 2011: og heitir Aðgangsorð pólitískra vinsælda. Þar segir meðal annars:

„Fyrirtæki sem missa veiðiheimildir [vegna fyrningar] standa uppi með óbreytta fjárfestingu og minni tekjur. Sá mikli fjöldi nýliða sem bætist við þarf að fjárfesta í skipum og fiskvinnsluhúsum án þess að fá nægjanlegar tekjur. Bæði ný og gömul fyrirtæki þurfa síðan að standa undir hærra auðlindagjaldi.“

Við skulum láta þessi orð sjálfstæðismannsins Þorsteins Pálssonar vera lokaorð við svargrein minni til viðreisnarmannsins Þorsteins Pálssonar. Eins og ég þekki manninn Þorstein Pálsson þá veit hann í hjarta sínu hvor maðurinn hefur rétt fyrir sér. Hann var áður þeim vanda vaxinn að segja satt.

 

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.

Höfundur er framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. 

Greinin birtist fyrst á Vísi.is.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.