Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur næst! Fimm miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 180.000 krónur í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Happahúsinu í Kringlunni, tveir á vef okkar lotto.is og einn í Lottó appinu.
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hann 2,5 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru sjö miðahafar með 2 vinning og fær hver þeirra 125.000 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Tvistinum í Vestmannaeyjum, í Lottó appinu, tveir miðanna á vef okkar lotto.is og þrír miðar eru í áskrift, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.