Jólablað Fylkis er komið út

Jólablað Fylkis 2019 var borið í hús í Eyjum um helgina og einnig sent  víðsvegar um land.   Blaðið er að þessu sinni 32 bls. sem er 8 bls. stærra en undanfarin ár. Tilefnið er 70 ára afmæli blaðsins en það kom fyrst úr 18. mars 1949.  Fjölmargar greinar eru í blaðinu og  fjallað um margvísleg málefni , má þar nefna  umfjöllun um komu ungversku flóttamannanna til Eyja fyrir rúmum 60 árum , húsið Steinholt við Kirkjuveg og íbúa þess, viðtal við Svabba Steingríms , vígslu sjóvarmaveitunnar, tónlistarlíf í Eyjum um 1950 ,  100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar,  starfsemi  Eyverja í 90 ár  og  jólahugvekja.   Þá er  Þátturinn Látnir kvaddir sem fylgt hefur blaðinu frá 1975.  JólaFylkir 2019 heild sinni er kominn á eyjafréttir.is  líkt og undanfarin ár og verður þar til loka janúar 2020. Jólablað Fylkis var prentað í Landsprent , en umbrot og uppsetning var í höndum  Sæþórs  Vídó Þorbjarnarsonar hjá Eyjasýn.  Ritstjóri JólaFylkis er Arnar Sigurmundsson og ábyrgðarmaður þess er Eyþór Harðarson.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.