Kap heim af síldarmiðum með hálfþrítugan skipstjóra í brúnni

Halldór Friðrik Alfreðsson fór í fyrsta sinn á sjó með föður sínu átta ára gamall og og var mikið að snöfla með honum niðri í bát sem smápjakkur. Pabbinn var yfirvélstjóri á Gullbergi VE frá 1997 til 2007.

Ellefu ára var Halldór Friðrik í veiðiferð með afa sínum og alnafna, þá starfsmanni Hvals hf. Þeir færðu hvali á land í Hvalfirði.

Síðan þá hefur margt á daga drengs drifið. Núna er hann yfirstýrimaður á Kap VE og einmitt í dag (9. september) á leið heim til Vestmannaeyja með 750 tonn af síld úr fyrsta túrnum sínum sem skipstjóri.

Sú fiskisaga er í sjálfu sér í frásögur færandi en miklu frekar þegar henni fylgir að Halldór Friðrik er einungis 25 ára gamall! Hann leysti Valdimar Gest Hafsteinsson skipstjóra á Kap af með glæsibrag.

„Einhver kynni að ætla að ég hefði átt að feta í fótspor föður míns og gerast vélstjóri en ég valdi aðra leið. Hvorugur okkar feðga telur samt að þar með hafi ég svikið málstað vélstjóranna …

Ferilinn byrjaði af alvöru fyrir tíu árum. Þá var ég fimmtán ára og vann í humri hjá Vinnslustöðinni og fékk skipsrúm sem háseti á Gandí VE. Aldrei kom annað til álita en sjómennskan.

Mér hefur gengið ágætlega. Það má fyrst og fremst þakka því að ég hef verið heppinn með lærifeður og fyrirmyndir í brúnni. Þar get ég  nefnt Jón Atla, fyrrverandi skipstjóra á Kap og núverandi skipstjóra á Gullbergi, Valdimar núverandi skipstjóra á Kap og svo réri ég með Magnúsi sem nú er skipstjóri á Ísleifi. Fleiri flotta karla gæti ég nefnt sem ég hef lært mikið af.

Svo má bæta við arfi forfeðranna. Pabbi og afi kenndu mér auðvitað margt sem kemur að gagni í lífi og starfi yfirleitt.“

Svo stiklað sé enn frekar á stóru um fortíð Halldórs Friðriks á ferlinum má nefna að hann leysti af sem háseti á „gamla“ Gullbergi frá 2014 til 2016 og fór að leysa af á hinum og þessum bátum líkt og gengur og gengur til að byrja með. Eitt árið var hann til að mynda á Maggý á snurvoð.

Haustið 2016 urðu kaflaskipti þegar hann fékk afleysingar á Kap og hefur haldið sig við uppsjávarveiðar síðan þá. Kap var í raun fyrsta fasta plássið hans.

Líf á Halldór Friðrik utan sjómennskunnar en það snýst fyrst og fremst um fjölskylduna, kærustuna Söndru Dís og dóttur þeirra, Sóldísi.

Ferðalög og útivera eru líka ofarlega á óskalistanum.

Halldór Friðrik slappar annars af og nýtur lífsins úti á sjó við Eyjar á trillunni sinni, Þorsteini VE-18, sérstaklega þegar vel viðrar. Trillan sú heitir reyndar eftir afa og alnafna eiganda síns, fyrrverandi skipstjóra úr Keflavík. Afinn hefur nokkrum sinnum farið á sjó með sonarsyninum.

Alfreð, faðir Þorsteins Friðriks, hefur verið duglegur að róa með syni sínum og þeim feðgum bregður einmitt fyrir á mynd af Þorsteini VE sem fylgir hér með.

Sjómenn eru gjarnan hjátrúarfullir, á ýmsan hátt og í mismiklum mæli. Það vel þekkt og nægir að nefna Sverri Gunnlaugsson, fyrrverandi skipstjóra á Gullbergi. Hann rakti í viðtali í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 2022 langan lista af því sem hann mátti gera eða ekki gera og nefndi sérstök föt sem hann klæddist til sjós til að betur gengi en ella.

Lítill fugl kvíslaði að Halldór Friðrik væri meðal hinna hjátrúarfullu, sem hann viðurkenndi en með semingi þó. Hann kvaðst vilja halda því hjá sér hvað í sinni hjátrúnni fælist en tók skýrt fram að hann kæmist hvergi nálægt Sverri á Gullbergi í þeim efnum.

Fyrr má nú líka aldeilis vera.

Af heimasíðu Vinnslustöðvarinnar – vsv.is – Atli Rúnar Halldórsson.

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.