Miðflokkurinn í bæjarstjórn.
Það er tilhlökkunarefni að vinna með verðandi bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum og ekki hvað síst þegar þar verður Miðflokkurinn kominn með sitt unga og öfluga fólk. Það er ótalmargt sem þingmenn og bæjarfulltrúar geta unnið sameiginlega að til að efla samfélagið í Vestmannaeyjum.
Rödd Eyjamanna á þingi.
Óneitanlega hefur þeim röddum fækkað sem talað hafa fyrir samfélagið í Eyjum í sölum Alþingis. Stjórnvöld hafa í æ ríkari mæli lagt skattbyrðar á herðar þeim sem starfa í samfélögum á landsbyggðinni, fjarri valdastofnunum í höfuðborginni. Við slíkar aðstæður er mikilvægt að í þinginu fái andstæð sjónarmið að heyrast, þar sem óhóflegri skattlagningu er mótmælt, staðið við loforð um uppbyggingu og hart deilt þegar stjórnvöld ganga á bak orða sinna.
Lagfæring Landeyjahafnar og Herjólfur.
Samgöngumál í Eyjum hafa lengi verið í umræðunni. Endurbætur á Landeyjahöfn er brýnasta verkefnið sem framundan er. Stjórnvöld hafa of lengi dregið lappirnar í þeim efnum. Landeyjahöfn verður að þjóna sínu hlutverki eins og til var stofnað allan ársins hring. Siglingar Herjólfs þurfa að vera öruggar og tíðar til að styðja við komur ferðamanna til Eyja og að atvinnurekstur geti starfað á eðlilegum forsendum. Flutningskostnað með ferjunni þarf að endurskoða.
Könnun vegna jarðgangna og flug.
Styðja þarf við tilraunaboranir vegna jarðgangna, svo unnt verði að taka ákvarðanir um fýsileika jarðgangna. Á meðan samgöngur eru ekki ásættanlegar þarf ríkisvaldið að bjóða upp á flug og tíðni ferða þarf að þjóna hagsmunum atvinnulífs, sjúklinga og aldraðra.
Ásælni ríkisins í land við Eyjar.
Nýverið sendi ég fyrirspurn til ráðherra hver kostnaðurinn var af brölti ríkisins og óbyggðanefndar um landvinninga í Vestmannaeyjum. Fjármunum og orku ríkisins hlýtur að vera unnt að verja í þarfari verkefni, en slíka feigðarför.
Opinber störf.
Standa þarf vörð um opinber störf í Vestmannaeyjum. Undirritaður barðist lengi fyrir að stjórn opinberra stofnanna yrði ekki færð upp á land. Þar er fyrst að nefna stöðu sýslumanns og síðar lögreglustjóra í Eyjum. Ekki má gleyma stjórn sjúkrahússins sem á að sjálfsögðu að vera í Vestmannaeyjum en ekki uppi á landi.
X M – Miðflokkurinn.
Í Vestmannaeyjum er mikil verðmætasköpun. Standa verður vörð um aðkomu ríkisins að hefðbundinni þjónustu við íbúa og samfélagið. Það því fagnaðarefni að íbúar eigi þess kost að styðja við frambjóðendur Miðflokksins í komandi kosningum. Það munar um Miðflokkinn.